
Faxaflóahafnir sf. leita að starfsfólki í hafnaröryggisgæslu og hafnargæslu sumarið 2026
Faxaflóahafnir sf. leita að öflugu starfsfólki í tvö störf í sumar. Hafnaröryggisgæsla í Reykjavík og Hafnargæslu á Grundartanga.
Áætlaður ráðningartími ;
- Starfsfólk í hafnaröryggisgæslu í Reykjavík frá byrjun maí til loka september 2026
- Hafnargæslumaður á Grundartanga í afleysingar frá miðjum maí til loka ágúst 2026, með möguleika á áframhaldandi starfi
--------------------------------------------------------------------------------------------
Starf í hafnaröryggisgæslu í Reykjavík
Starfið felst í að veita faglega og áreiðanlega öryggisgæslu og þjónustu í höfnum Faxaflóahafna. Helstu verkefni eru öryggisgæsla við komur og brottfarir skemmtiferðaskipa, móttaka skipa, umhirða hafnarsvæða, ásamt öðrum tilfallandi verkefnum tengdum þjónustu við viðskiptavini.
Hæfniskröfur – Hafnaröryggisgæsla í Reykjavík
- Hæfni til að starfa í teymi
- Góð enskukunnátta í ræðu og riti (íslenskukunnátta er kostur)
- Grunnfærni í tölvunotkun
- Gott líkamlegt og andlegt ástand
- Umsækjandi skal leggja fram hreint sakavottorð með umsókn
--------------------------------------------------------------------------------------------
Starf hafnargæslumanns á Grundartanga
Starfið felst í aðgangsstjórnun og öryggisgæslu á afgirtu hafnarsvæði, reglubundnu eftirliti með aðstoð myndavélaeftirlitskerfis, auk fjarvöktunar á öðrum hafnarsvæðum og eignum Faxaflóahafna.
Hæfniskröfur – Hafnargæsla á Grundartanga
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Góð almenn tölvukunnátta
- Gott líkamlegt og andlegt ástand
- Umsækjandi skal leggja fram hreint sakavottorð með umsókn
--------------------------------------------------------------------------------------------
Starfsstöð hafnaröryggisgæslu er í Reykjavík og starfsstöð hafnargæslumanns er á Grundartanga.
Við hvetjum hæfileikaríkt og metnaðarfullt fólk til að sækja um, óháð kyni. Faxaflóahafnir sf. hafa skýra jafnréttisstefnu og leggja áherslu á fjölbreytileika í starfsliði sínu.
Nánari upplýsingar um störfin gefur J.Snæfríður Einarsdóttir, sviðsstjóri hafnarinnviða, [email protected]
Umsókn, ásamt ferilskrá sendist til Faxaflóahafna sf., á netfangið [email protected], eigi síðar en sunnudaginn 15 febrúar n.k











