Frístundaklúbburinn Úlfurinn
Frístundaklúbburinn Úlfurinn

Hlutastarf í Frístundaklúbbnum Úlfinum

Frístundaklúbburinn Úlfurinn leitar eftir öflugu og framsæknu starfsfólki í hlutastarf.

Frístundaklúbburinn Úlfurinn er fyrir fötluð börn og ungmenni á aldrinum 10 -20 ára. Unnið er eftir hugmyndafræðinni þjónandi leiðsögn. Frítímastarf er í boði fyrir börn og ungmenni að loknum skólatíma þar sem markmið frístundaklúbbsins er að veita börnum og ungmennum einstaklingsmiðaða þjónustu með skipulögðum tómstundum.

Starfsfólk aðstoðar börn og ungmenni við daglegar athafnir ásamt því að leiðbeina þeim í leik og starfi.

Í boði eru 30-50% hlutastörf eftir hádegi.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Hentar vel fyrir fólk í skóla.

Mosfellsbær er öflugt og eftirsótt sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.

Umsóknarfrestur er til og með 13. október 2024

Umsóknir skulu innihalda starfsferilsskrá sem greinir frá reynslu, menntun og fyrri störfum ásamt nokkrum orðum af hverju þú telur þig hæfa/n í starfið. Nánari upplýsingar um starfið veitir Margrét Rós Einarsdóttir, forstöðumaður Úlfsins í síma: 692-9608. Öllum umsóknum verður svarað. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands ísl. sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Ráðið er í öll störf óháð kyni.

Helstu verkefni og ábyrgð

· Skipulagning á faglegu frístundastarfi fyrir börn og ungmenni 10-20 ára

· Leiðbeina börnum í leik og starfi

· Samráð og samvinna við börn og starfsfólk

Menntunar- og hæfniskröfur

· Áhugi á að vinna með ungu fötluðu fólki

· Þjónustulund og jákvæðni í starfi

· Hæfni í mannlegum samskiptum

· Frumkvæði, sjálfstæði og metnaður í starfi

· Hreint sakavottorð

· Góð íslenskukunnátta er skilyrði

· Aldurstakmark er 18 ára

Auglýsing birt23. september 2024
Umsóknarfrestur13. október 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaMjög góð
Staðsetning
Þverholt 2, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar