

Hjúkrunarfræðingar - spennandi störf á legudeild geðrofssjúkdóma
Ertu öflugur liðsfélagi og hefur áhuga á að starfa í umhverfi sem leggur áherslu á starfsþróun, fagmennsku, samvinnu og góðan starfsanda?
Legudeild geðrofssjúkdóma óskar eftir áhugasömum hjúkrunarfræðingum sem vilja efla sig á sviði geðhjúkrunar. Starfsumhverfi deildarinnar er spennandi, krefjandi og skemmtilegt. Fjölmörg tækifæri eru fyrir umbótavinnu, uppbyggingu og þróun deildarinnar. Það eru spennandi tímar í geðhjúkrun og mikil áhersla er á eflingu hjúkrunar í þjónustunni, Hjúkrunarfræðingum, nýútskrifuðum sem og reyndum, gefst kostur á starfsþróunarári með öflugri faghandleiðslu með það að markmiði að dýpka þekkingu sína á geðhjúkrun og byggja upp frekari meðferðarhæfni. Boðið verður upp á einstaklingshæfða aðlögun á deild, undir leiðsögn reyndra hjúkrunarfræðinga.
Deildin er sextán rúma deild og sérhæfð fyrir einstaklinga með geðrofssjúkdóma. Á deildinni er veitt sérhæfð meðferð, allt frá bráðri meðferð yfir í endurhæfingu sem byggir meðal annars á virknimeðferð, samtalsmeðferð, fræðslu og lyfjameðferð. Lögð er áhersla á notendamiðaða nálgun og hefur hjúkrun mikið vægi í þeirri meðferð sem veitt er. Deildin státar af góðri þverfaglegri teymisvinnu og er sérstök áhersla lögð á að veita aðstandendum stuðning og fræðslu.
Almennt er unnið á þrískiptum vöktum og ráðning er frá 15.september 2024 eða eftir samkomulagi.










































