Reitun ehf
Reitun ehf

Greinandi í UFS mötum og sjálfbærni

Reitun er alhliða greininga- og matsfyrirtæki á innlendum fjármálamarkaði. Sjálfbærnigreiningar og UFS möt eru eitt af verkefnum Reitunar og leitum við nú að öflugum greinanda með brennandi áhuga á sjálfbærni til að bætast í hópinn.

UFS möt (e. ESG Rating) eru möt á sjálfbærniframmistöðu fyrirtækja, fjármálafyrirtækja og annarra rekstraraðila. UFS stendur fyrir umhverfis- og félagsþætti og stjórnarhætti. Vaxandi kröfur almennings, fjárfesta og löggjafans eru gerðar til fyrirtækja í sjálfbærnimálum auk þess sem farið er að taka tillit til þeirra í verðmötum fyrirtækja og lánshæfismötum. UFS möt meta sjálfbærniþætti með hlutlægum hætti og gefur þeim einkunn þannig að hægt er að sjá hratt og vel hvernig fyrirtæki standa í samanburði við aðra. Reitun hefur undanfarin tvö ár metið alla skráða útgefendur hlutabréfa og skuldabréfa í Kauphöllinni.

Hjá Reitun byggjum við á öflugri aðferðafræði, miklum gagnagæðum, sérhæfðu stafrænu matskerfi og góðri þekkingu. Þjónustusamningar eru við erlendar gagnalindir, upplýsingaveitur og önnur matsfyrirtæki. Viðskiptavinir eru fjárfestar, fjármálafyrirtæki og fyrirtæki.

Nýr starfsmaður fær góða þjálfun í byrjun til að vera vel undirbúinn að takast á við komandi verkefni.

Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Allar umsóknir vel þegnar og svarað að ráðningu lokinni.

Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi, eins og viðskiptafræði, verkfræði eða annað sambærilegt nám
Hæfni í greiningu og úrlausn verkefna
Frumkvæði, metnaður og áreiðanleiki í starfi
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Jákvæðni og færni í mannlegum samskiptum
Reynsla af greiningarvinnu eða sjálfbærnimálum er kostur en ekki nauðsynlegur
Helstu verkefni og ábyrgð
Verkefni við greiningu og mat á UFS þáttum rekstraraðila
Þátttaka í matsnefnd og árlegu endurmati á aðferðafræðinni
Aðkoma að stafrænni þróun og öðrum umbótaverkefnum
Önnur verkefni sem falla til
Auglýsing birt29. mars 2022
Umsóknarfrestur8. apríl 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Suðurlandsbraut 6, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögð
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar