Verkís
Verkís
Verkís

Framkvæmdaeftirlit - Vestfirðir, Vesturland, Reykavík

Við óskum eftir byggingafræðingi, - tæknifræðingi eða -verkfræðingi í framkvæmdaeftirlit. Starfið felur í sér eftirlit með fjölbreyttum framkvæmdaverkefnum s.s. samgöngumannvirkjum og húsbyggingum. Starfsstöð getur verið á Ísafirði, Borgarnesi, Akranesi eða í Reykjavík.

Við höfum áhuga á jákvæðum einstaklingum með góða samskipta- og skipulagshæfni sem sýna metnað, frumkvæði og sjálfstæði í starfi.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Byggingafræðingur, -tæknifræðingur, -verkfræðingur
  • Reynsla af eftirliti eða hönnun í mannvirkjagerð er kostur
  • Gott vald á íslensku og ensku
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum

Nánari upplýsingar veita Áslaug Ósk Alfreðsdóttir sérfræðingur í mannauðsmálum, aoa@verkis.is og Guðrún Jóna Jónsdóttir sviðsstjóri Starfsstöðvasviðs, gjj@verkis.is

Verkís er með útibú í öllum landshlutum og samtals 11 starfsstöðvar á landsbyggðinni. Það er metnaður Verkís að veita staðbundna þjónustu sem víðast á landinu. Tæknifólk okkar á landsbyggðinni sinnir margvíslegum verkefnum og því til viðbótar eru aðrir sérfræðingar Verkís sem koma að sértækari verkefnum og þjónustuframboðið því afar breitt.

Auglýsing stofnuð18. apríl 2024
Umsóknarfrestur12. maí 2024
Tungumálakunnátta
ÍslenskaÍslenskaMjög góð
EnskaEnskaMeðalhæfni
Staðsetning
Hafnarstræti 1, 400 Ísafjörður
Ofanleiti 2, 103 Reykjavík
Bjarnarbraut 8, 310 Borgarnes
Smiðjuvellir 28, 300 Akranes
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar