Fossvogsskóli óskar eftir umsjónakennara
Fossvogsskóli er hverfisskóli staðsettur í Fossvogsdalnum þar sem eru greiðar göngu- og hjólaleiðir í ein fallegustu útivistarsvæði borgarinnar; Elliðaárdalinn og Nauthólsvíkina. Nemendafjöldi er um 350 í 1. – 7. bekk og starfsmenn eru rúmlega 50.
Fossvogsskóli hefur á að skipa öflugu starfsfólki. Hann er þátttakandi í Grænfánaverkefni Landverndar og verkefni um Heilsueflandi grunnskóla og vinnustaðar. Í skólanum er unnið með læsi á fjölbreytilegan máta og byggt er á teymiskennslu og samvinnu kennara. Fossvogsskóli vinnur í anda Uppeldis til ábyrgðar og áhersla er á verk- og listgreinar, útivist og fjölbreytt og sveigjanlegt skólastarf. Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem býr yfir frumkvæði og góðri fagþekkingu á skólastarfi og er tilbúinn til þess að taka þátt í skólaþróun.
Gildi skólans eru vinátta - virðing - vellíðan.
- Skipuleggur nám, kennslu og námsmat nemenda samkvæmt markmiðum og námskrá
- Sinnir daglegu fagstarfi og kennslu barna á sínu skólastigi
- Vinnur að skólaþróun og uppbyggingu skólasamfélagsins ásamt samstarfsfólki
- Stuðlar að velferð nemenda og samstarfi við foreldra og annað fagfólk
- Tekur þátt í teymisvinnu
- Starfar samkvæmt stefnu skólans
- Foreldrasamskipti og samvinna heimilis og skóla
- Leyfisbréf til kennslu
- Sérhæfing eða reynsla af kennslu á yngsta eða miðstigi
- Áhugi á skólaþróun
- Reynsla af foreldrastarfi
- Sjálfstæði, sveigjanleiki, frumkvæði, faglegur metnaður og góð samskiptahæfni
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði, bæði í ræðu og riti
- Góð tölvukunnátta
- Reynsla af teymisvinnu í grunnskóla
- Hreint sakarvottorð