Stuðningsfulltrúi
Fossvogsskóli leitar eftir öflugum stuðningsfulltrúa.
Fossvogsskóli er hverfisskóli staðsettur í Fossvogsdalnum þar sem eru greiðar göngu- og hjólaleiðir í ein fallegustu útivistarsvæði borgarinnar; Elliðaárdalinn og Nauthólsvíkina. Nemendafjöldi er um 350 í 1. – 7. bekk og starfsmenn eru rúmlega 50.
Fossvogsskóli hefur á að skipa öflugu starfsfólki. Hann er þátttakandi í Grænfánaverkefni Landverndar og verkefni um Heilsueflandi grunnskóla og vinnustaðar. Í skólanum er unnið með læsi á fjölbreytilegan máta og byggt er á teymiskennslu og samvinnu kennara. Fossvogsskóli vinnur í anda Uppeldis til ábyrgðar og áhersla er á verk- og listgreinar, útivist og fjölbreytt og sveigjanlegt skólastarf. Skólinn leitar að stuðningsfulltrúa í góðan hóp starfsfólks.
Gildi skólans eru vinátta - virðing - vellíðan.
- Að veita nemendum stuðning í daglegum athöfnum og námi
- Aðstoða nemendur við að ná settum viðmiðum samkvæmt skólanámsskrá/einstaklingsnámskrá undir leiðsögn kennara og deildarstjóra sérkennslu
- Að starfa í stuðnings- og sérkennsluteymi skólans
- Að styðja nemendur í félagslegum samskiptum í skólastarfinu
- Að fylgja nemendum eftir á ferðum þeirra um skólann, í frímínútum og vettvangsferðum
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Reynsla og áhugi á að vinna með börnum
- Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
- Fagmennska í vinnubrögðum
- Hreint sakarvottorð