Betri samgöngur ohf.
Betri samgöngur ohf. er opinbert hlutafélag sem stofnað var til að hrinda í framkvæmd uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu í samræmi við samgöngusáttmála sem ríkið annars vegar og sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu hins vegar gerðu með sér. Félagið hefur yfirumsjón með framkvæmdum vegna uppbyggingar á samgöngum á höfuðborgarsvæðinu og fjármögnun þeirra.
Markmið félagsins er að stuðla að greiðum, skilvirkum, hagkvæmum og öruggum samgöngum á höfuðborgarsvæðinu með jafnri uppbyggingu innviða allra samgöngumáta. Auk þess að vinna að auknu umferðaröryggi, stuðla að því að loftslagsmarkmiði um sjálfbært og kolefnislaust borgarsamfélag verði náð og að lýðheilsa verði efld. Félaginu er ætlað að tryggja samstarf milli ríkis og sveitarfélaga um skilvirka uppbyggingu samgönguinnviða.
Félagið hefur yfirumsjón með framkvæmdunum og fjármögnun þeirra m.a. með yfirtöku og þróun á landi við Keldur í Reykjavík.
Forstöðumaður hjóla- og göngustíga Samgöngusáttmálans
Betri samgöngur leita að árangursmiðuðum einstaklingi í starf forstöðumanns hjóla- og göngustíga Samgöngusáttmálans. Forstöðumaður tekur þátt í að leiða eitt stærsta framkvæmdaverkefni samtímans.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Stjórn undirbúnings og framkvæmda vegna hjóla- og göngustíga Samgöngusáttmálans.
- Samræming viðmiða við hönnun stíga.
- Forgangsröðun verkefna, umsjón með áætlanagerð og eftirfylgni áætlana.
- Yfirumsjón framkvæmda og -eftirlits stíga í samvinnu við sveitarfélög og Vegagerðina.
- Forsvar fyrir hjóla- og göngustíga á höfuðborgarsvæðinu með kynningum og samskiptum við hagaðila, svo sem almenning, sveitarfélög, ráðuneyti, opinberar stofnanir og fyrirtæki.
- Önnur tilfallandi verkefni sem alla jafna falla undir sambærileg starfsvið.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólapróf í verkfræði eða sambærilegu námi sem nýtist í starfinu.
- Haldgóð þekking og reynsla á forsendum við hönnun og öryggi hjóla- og göngustíga.
- Þekking á undirbúnings- og skipulagsferli sveitarfélaga.
- Reynsla í verkefnastjórnun.
- Framúrskarandi samskiptahæfileikar og jákvætt viðmót.
- Drifkraftur, frumkvæði og metnaður til að ná árangri.
- Góð færni til tjáningar í ræðu og riti á íslensku og ensku.
Auglýsing birt1. október 2024
Umsóknarfrestur8. október 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaMjög góð
EnskaMeðalhæfni
Staðsetning
Grandagarður 16, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
LeiðtogahæfniMetnaðurVerkefnastjórnun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (5)
Framkvæmdastjóri ReykjavíkurAkademíunnar
ReykjavíkurAkademían ses.
Forstöðumaður Tómstundaseturs – Mennta- og lýðheilsusvið
Hafnarfjarðarbær
Forstöðumaður háttsemiseftirlits í Regluvörslu Íslandsbanka
Íslandsbanki
Forstöðumaður Arion Premíu
Arion Banki
Forstöðumaður sölu- og viðskiptalausna á Innanlandssviði
Eimskip