Íslandsbanki
Íslandsbanki er alhliða banki sem leggur áherslu á að koma til móts við þarfir viðskiptavina sinna og á sér langa sögu sem nær aftur til ársins 1875. Bankinn leggur áherslu á traustan rekstur og að hafa jákvæð áhrif í samfélaginu en hlutverk bankans er að vera hreyfiafl til góðra verka svo viðskiptavinir okkar nái árangri. Með framtíðarsýnina að vera #1 í þjónustu að leiðarljósi vinna þrjár viðskiptaeiningar þétt saman til þess að viðhalda góðum viðskiptasamböndum.
Hjá Íslandsbanka starfa um 750 manns sem hafa ástríðu fyrir árangri og vinna að lausnum fyrir viðskiptavini með fagmennsku að leiðarljósi. Við leggjum áherslu á að skapa virði til framtíðar með traustum rekstri og framúrskarandi þjónustu.
Forstöðumaður háttsemiseftirlits í Regluvörslu Íslandsbanka
Íslandsbanki leitar að metnaðarfullum, hugrökkum, framsýnum og drífandi einstaklingi með framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum til að gegna stöðu forstöðumanns háttsemiseftirlits hjá Regluvörslu bankans. Eftirlit deildarinnar snýr m.a. að starfsemi bankans á mörkuðum fyrir fjármálagerninga og hugsanlegum markaðssvikum, sem og eftirlit með innleiðingu laga og reglubreytinga. Viðkomandi mun leiða öflugt teymi sérfræðinga og vinna náið með hagaðilum þvert á starfsemi bankans.
Ef þú hefur brennandi áhuga á góðum viðskiptaháttum í starfsemi fjármálafyrirtækja, starfsemi Regluvörslu og haldgóða reynslu af stjórnun þá gætir þú verið einstaklingurinn sem við leitum að.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ábyrgð á daglegu starfi deildar, þ.m.t. þróun og innleiðing áhættumiðaðs eftirlits
- Áframhaldandi mótun og gerð skilvirkra úttekta
- Veita faglega ráðgjöf til hagaðila
- Fjölbreytt fræðsla fyrir ólíka hópa starfsfólks
- Þróun og innleiðing innri verkferla
- Leiða öflugt teymi sérfræðinga
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun á framhaldsstigi sem nýtist í starfi, t.d. á sviði lögfræði
- Próf í verðbréfaviðskiptum æskilegt
- Markverð þekking á regluverki og góðum viðskiptaháttum fjármálafyrirtækja
- Þekking á starfsemi innri og ytri eftirlitsaðila á fjármálamarkaði
- Reynsla af stjórnun teymis sérfræðinga með fjölbreyttan bakgrunn og reynslu
- Frábæra samskipta- og samstarfsfærni
- Skipulögð og lausnamiðuð hugsun með áherslu á skilvirka framkvæmd
- Hæfni til að miðla efni í ræðu og riti bæði á íslensku og ensku
Auglýsing birt2. október 2024
Umsóknarfrestur14. október 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaFramúrskarandi
EnskaFramúrskarandi
Staðsetning
Hagasmári 3, 201 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiHeiðarleikiInnleiðing ferlaJákvæðniKennslaLeiðtogahæfniMannauðsstjórnunMannleg samskiptiMetnaðurSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðSkipulagSkýrslurStundvísiTeymisvinnaVandvirkniVinna undir álagiÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (12)
Framkvæmdastjóri ReykjavíkurAkademíunnar
ReykjavíkurAkademían ses.
Lögmaður með málflutningsréttindi
BPO innheimta
Lögfræðingur
Útlendingastofnun
Forstöðumaður Tómstundaseturs – Mennta- og lýðheilsusvið
Hafnarfjarðarbær
Verkefnastjóri farsældar á Austurlandi
Austurbrú ses.
Forstöðumaður hjóla- og göngustíga Samgöngusáttmálans
Betri samgöngur ohf.
Hjúkrunardeildarstjóri á bæklunarskurðdeild B5 í Fossvogi
Landspítali
Lögfræðingur á eftirlits- og rannsóknasviði Skattsins
Skatturinn
Spennandi starf við skatteftirlit og rannsóknir
Skatturinn
Menntasvið leitar að leiðtoga frístundadeildar
Kópavogsbær
Forstöðumaður Arion Premíu
Arion Banki
Framkvæmdastjóri vinds og jarðvarma
Landsvirkjun