Forstöðumaður Tómstundaseturs – Mennta- og lýðheilsusvið
Tómstundasetur er ný starfsemi þar sem boðið er upp á frístunda- og tómstundastarf fyrir börn og ungmenni úr Hafnarfirði. Aðstaðan er í nýju húsnæði að Selhellu 7. Stór hluti þjónustunnar er frístundastarf fyrir framhaldsskólanema með fötlun sem fer fram að skóladegi loknum en auk þess fer annað fjölbreytt tómstunda- og félagsstarf fram í Tómstundasetrinu. Starfshópur á vegum Hafnarfjarðarbæjar vinnur að mótun starfseminnar.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Dagleg stjórnun og rekstur starfseminnar
- Skipulagning á starfsemi Tómstundaseturs
- Þátttaka í stefnumótun og forysta við þróun verkefna
- Ábyrgð á starfsmannamálum
- Samstarf við þjónustuþega og forráðamenn þeirra
- Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu og sem yfirmaður felur viðkomandi
Menntunar- og hæfniskröfur:
- BA gráða í þroskaþjálfafræði, tómstunda- og félagsmálafræði eða sambærileg menntun
- Meistaragráða í þroskaþjálfafræði, uppeldis- og menntunarfræði, tómstunda- og félagsmálafræði, fötlunarfræði eða stjórnun
- Reynsla af sambærilegu starfi ásamt reynslu af stjórnun með mannaforráð
- Góð reynsla af skipulagningu tómstundastarfs
- Frumkvæði, sjálfstæði og skipulagshæfni
- Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni
- Þjónustulund og geta til að aðlagast breyttum aðstæðum
- Geta og áhugi á að valdefla samstarfsmenn og þjónustunotendur og vinna eftir lýðræðislegum starfsaðferðum
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Góð tölvukunnátta
Umsóknarfrestur er til og með 14. október 2024.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni.
Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Nánari upplýsingar veita Geir Bjarnason íþrótta- og tómstundafulltrúi (geir@hafnarfjordur.is) s: 664-5754 og Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) í s:511-1225.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við BHM.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.