Umhverfis- og skipulagssvið
Umhverfis- og skipulagssvið
Umhverfis- og skipulagssvið

Flokkstjóri garðyrkjufólks

Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkur leitar að flokkstjóra garðyrkjufólks til starfa á starfstöðina í Elliðaárdal. Við bjóðum upp á fjölbreytt og krefjandi verkefni þar sem þú færð tækifæri til að leiða teymi og hafa áhrif á umhverfið í borginni.

Meðal verkefna flokkstjóra má nefna plantanir á trjám, runnum, fjölæringum og sumarblómum, umhirða og möguleg útfærsla á blómabeðum og blómakerjum í görðum og götuumhverfi, trjáklippingar, illgresishreinsun, stýringu vinnuhóps við viðhald og framkvæmdir á grænum svæðum og að tryggja að öryggisreglum sé fylgt. Starfið er að miklu leyti unnið utandyra, við leitum því að einstaklingi sem nýtur þess að vinna í fjölbreyttum aðstæðum og er tilbúinn að vinna úti í öllum veðrum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ábyrgð á að leiða vinnuhóp sem sinnir viðhaldi og framkvæmdum á grænum svæðum (m.a. görðum, leiksvæðum og opnum grænum svæðum)
  • Trjáklippingar og grisjun.
  • Plöntun trjáa, runna og sumarblóma. Endurnýjun og viðhald á beðum, þar á meðal vökvun og almenn viðhaldsvinna.
  • Umsjón með opnum leiksvæðum og skrúð- og borgargörðum.
  • Grunnþjálfun starfsfólks í samráði við verkstjóra/yfirverkstjóra.
  • Akstur bifreiða, vinnuvéla og annarra tækja.
  • Eftirfylgni með öryggisreglum og notkun persónuhlífa eftir því sem við á.
  • Samskipti við íbúa og önnur borgaryfirvöld um verkefni og ábendingar.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Garðyrkjufræðingur frá Landbúnaðarháskóla Íslands, Garðyrkjuskólanum, FSu eða sambærilegt.
  • Að lágmarki þriggja ára reynsla af garðyrkjustörfum eða sambærilegu.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og hæfni til að leiða teymi.
  • Skipulögð og fagleg vinnubrögð.
  • Framtakssemi, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Almenn ökuréttindi
  • Íslenskukunnátta B1-B2 eða enskukunnátta B1-B2 skv. samevrópskum matsramma fyrir tungumálakunnáttu.
  • Líkamleg hæfni þar sem stór hluti starfsins krefst vettvangsvinnu við aðstæður sem geta verið erfiðar.
  • Hæfni í öryggismálum og ábyrg notkun véla og tækja (t.d. krani, bifreið, lyftarar).
Auglýsing birt6. febrúar 2026
Umsóknarfrestur20. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
EnskaEnska
Valkvætt
Meðalhæfni
Staðsetning
Árbæjarblettur 33, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn ökuréttindiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Líkamlegt hreystiPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Vandvirkni
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar