Hvalfjarðarsveit
Hvalfjarðarsveit
Hvalfjarðarsveit

Sumarstörf hjá Hvalfjarðarsveit

Hvalfjarðarsveit óskar eftir að ráða í eftirfarandi sumarstörf sumarið 2026.

Umsjónaraðili Vinnuskóla.
Um er að ræða starf frá 18. maí til 14. ágúst.
Umsækjendur skulu vera 20 ára eða eldri.

Flokkstjóri Vinnuskóla.
Um er að ræða starf frá 18. maí til 14. ágúst.
Umsækjendur skulu vera 18 ára eða eldri.

Vinnuskólinn er bæði vinna og skóli, félagslega skapandi vinnustaður, með kennslu í almennri vinnuskólavinnu og skýrar reglur varðandi vinnuumhverfi.
Vinnuskólinn starfar við öll almenn verkefni sem lúta að umhirðu og snyrtingu sveitarfélagsins.

Umsóknarfrestur er til og með 13. febrúar nk.

Nánari upplýsingar veitir Anna Guðrún Alexandersdóttir, verkefnastjóri Velferðar- og fræðsludeildar, í gegnum netfangið [email protected] eða í síma 433-8500.

Hægt er að skoða fleiri störf hjá Hvalfjarðarsveit á heimasíðu sveitarfélagsins, hvalfjardarsveit.is

Helstu verkefni og ábyrgð

🍀Ber daglega ábyrgð og yfirumsjón á skipulagningu og starfsemi Vinnuskólans í samstarfi við verkefnastjóra Velferðar- og fræðsludeildar.

🍀Hefur samskipti við forráðamenn og viðeigandi stofnanir.

🍀Vinnur markvisst að því að efla liðsheild í hópnum.

🍀Leiðbeinir um verklag og aðferðir, hefur eftirlit með að vel og rétt sé unnið.

🍀Umsjónaraðili og flokkstjóri taka þátt í þeim verkum sem hópurinn sinnir dags daglega.

🍀Ber ábyrgð á að skila tímaskýrslum nemenda, vinnuseðlum og verkbeiðnum.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Áhugi á að vinna með unglingum er skilyrði.
  • Reynsla af stjórnun og vinnu með ungu fólki er æskileg.
  • Sé hæfur til að vera unglingum fyrirmynd er varðar heilbrigðan lífsstíl, stundvísi og tillitsemi.
  • Hafa góða færni í samskiptum og hæfni til að stýra fólki.
  • Leiðbeinir um verklag og aðferðir, hefur eftirlit með að vel og rétt sé unnið.
  • Umsækjendur þurfa að hafa bílpróf og hreint sakavottorð. Allir umsækjendur þurfa að gefa leyfi fyrir að upplýsinga um þá sé aflað úr sakaskrá, sbr. 10. gr. laga nr. 70/2007.
Auglýsing birt19. janúar 2026
Umsóknarfrestur13. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Skólastígur 2, 301 Akranes
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn tæknikunnáttaPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.ReyklausPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar