Landspítali
Landspítali
Landspítali

Félagsráðgjafi á móttökugeðdeild 33C á Landspítala

Leitað er að áhugasömum og metnaðarfullum félagsráðgjafa til starfa á móttökugeðdeild 33C á Landspítala. Viðkomandi þarf að búa yfir færni til að vinna að lausnum og hafa metnað til að veita framúrskarandi þjónustu. Lögð er áhersla á þverfaglega teymisvinnu, fjölskyldumiðaða nálgun og gagnreynd vinnubrögð. Meginhlutverkið er að veita sjúklingum og aðstandendum þeirra stuðning til þess að takast á við breytingar sem verða í kjölfar veikinda og afleiðingar þess, kortleggja þjónustuþörf sjúklinga og veita þeim og fjölskyldum þeirra upplýsingar um félagsleg réttindi, aðstoða við útskriftir og tengingar við önnur þjónustukerfi. Margvíslegir möguleikar ery á starfsþróun

Áhersla er á stuðning við fjölskyldur og stuðning við börn sem aðstandendur á grundvelli laga um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna. Á móttökugeðdeild er m.a. veitt sérhæfð þjónusta fyrir foreldra sem glíma við geðsjúkdóma á meðgöngu og eftir fæðingu. Landspítali styður nýútskrifaða félagsráðgjafa í starfi með markvissri handleiðslu og fræðslu, samhliða starfi í formi starfsþróunarárs Landspítala.

Á Landspítala starfa um 50 félagsráðgjafar sem sinna margþættri þjónustu við sjúklinga á öllum sviðum spítalans. Félagsráðgjafar starfa í nánu samstarfi við annað starfsfólk spítalans og lögð er áhersla á þverfaglega teymisvinnu. Landspítali er fjölskylduvænn vinnustaður og býður upp á heilsueflandi vinnuumhverfi, samgöngusamninga og styttingu vinnuvikunnar.

Menntunar- og hæfniskröfur
Íslenskt starfsleyfi sem félagsráðgjafi
Áhugi á félagsráðgjöf á heilbrigðissviði
Góð samskiptafærni og hæfni til að vinna í teymi
Fjölbreytt starfsreynsla á sviði félags- og/ eða heilbrigðisþjónustu er æskileg
Reynsla af vinnu með fjölskyldum er kostur
Geta til að vinna undir álagi
Frumkvæði, framsýni og lausnamiðuð hugsun
Helstu verkefni og ábyrgð
Aðstoða sjúklinga og aðstandendur við að leita félagslegra réttinda
Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
Samvinna við aðrar stofnanir í heilbrigðis- og félagsþjónustu
Fræðsla til sjúklinga og aðstandenda
Stuðningur við fjölskyldur í veikindaferli og bata
Fjölbreytt meðferðarstarf sem tengist sérhæfingu deildarinnar
Aðstoð við útskriftir
Milliganga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna samkvæmt lögum
Auglýsing birt7. febrúar 2024
Umsóknarfrestur26. febrúar 2024
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Hringbraut Landspítali , 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (27)
Landspítali
Heilbrigðisgagnafræðingur - Lyflækningar krabbameina
Landspítali
Landspítali
Skrifstofumaður - Lyflækningar krabbameina
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliði á almenna endurhæfingardeild aldraðra L2
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarnemar - Spennandi hlutastörf með námi á gjörgæslu Fossvogi
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliðar á bæklunarskurðdeild AB5 Fossvogi
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur í meltingarteymi
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur í ígræðsluteymi
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliðar á nýja réttar- og öryggisgeðdeild á Kleppi
Landspítali
Landspítali
Ráðgjafar/ stuðningsfulltrúar á nýja réttar- og öryggisgeðdeild á Kleppi
Landspítali
Landspítali
Læknir - Tímabundið starf
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur í kviðarholsteymi
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliði á hjarta-, lungna-, augnskurðdeild og nýrnalækningadeild 12G
Landspítali
Landspítali
Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á nýrri réttar- og öryggisgeðdeild
Landspítali
Landspítali
Ljósmóðir á meðgönguvernd og bráðaþjónusta kvennadeilda
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliði á bráðaöldrunarlækningadeild Fossvogi
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á bráðaöldrunarlækningadeild Fossvogi
Landspítali
Landspítali
Deildarstjóri gæðadeildar
Landspítali
Landspítali
Teymisstjóri í aðfangaþjónustu
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingar á nýja réttar- og öryggisgeðdeild
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknar í geðlækningum
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur - Heimaspítali barna
Landspítali
Landspítali
Heilbrigðisgagnafræðingur - Barnaspítali Hringsins
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir í myndgreiningu
Landspítali
Landspítali
Vöru- og verkefnastjóri heilbrigðistækni hjá stafrænni framþróun
Landspítali
Landspítali
Iðjuþjálfi - Komdu að vinna með okkur í geðþjónustu
Landspítali
Landspítali
Interested in Nursing Opportunities in Iceland? Register on our portal!
Landspítali
Landspítali
Interested in Medical Opportunities in Iceland? Register on our portal!
Landspítali