Orka náttúrunnar
Orka náttúrunnar
Orka náttúrunnar

Fararstjóri í stafrænni vegferð

Vilt þú vera hluti af lausninni?

Orka náttúrunnar leitar að manneskju með brennandi áhuga á nýsköpun, umhverfismálum og snjöllum lausnum til þess að varða leiðina inn í græna stafræna framtíð á spennandi raforkumarkaði. Framundan er fullmótun og framkvæmd langtímastefnu og forgangsröðun tækifæra í þjónustu við viðskiptavini og einföldun ferla. Ef þú vilt gegna lykilhlutverki í að móta framtíðina með okkur þá viljum við heyra frá þér.

Þú munt leiða stafræna vegferð Orku náttúrunnar (ON) í samstarfi við sérfræðinga og stjórnendur fyrirtækisins sem og samstæðu Orkuveitu Reykjavíkur (OR). Þú berð ábyrgð á skilgreiningu þarfa og forgangsröðun verkefna stafrænnar þróunar hjá Orku náttúrunnar og tekur jafnframt þátt í að byggja upp skipulag í kringum stafræna vegferð samstæðu Orkuveitu Reykjavíkur.

Við horfum til drífandi manneskju sem býr yfir ríkum umbótavilja, hugmyndaauðgi og umhyggju.

Menntunar- og hæfniskröfur
Frumkvæði, umbóta- og stefnumiðuð hugsun.
Samstarfs- og samskiptahæfileikar, metnaður og heilindi.
Færni í breytingastjórnun.
Reynsla og hæfni í að greina og setja upp viðskiptatækifæri, áhættur og ávinning á einfaldan og skýran hátt.
Brennandi áhugi og þekking á stafrænni tækni, rekstri, þjónustu, og neytendahegðun.
Reynsla af stafrænni umbreytingu kostur.
Helstu verkefni og ábyrgð
Ábyrgð á framþróun stafrænnar vegferðar hjá ON.
Vera fararstjórinn í stafrænni þróun ON á þann hátt að við náum framúrskarandi árangri í þjónustu við viðskiptavini og rekstri fyrirtækisins.
Þátttaka í mótun og útfærslu langtímastefnu í stafrænni vegferð OR samstæðunnar.
Vinnur með stjórnendum og starfsfólki að því að kortleggja og forgangsraða tækifærum með skýrri áherslu á að ná fram hámarksávinning á sem hagkvæmastan máta.
Vinnur þvert á fyrirtæki og einingar samstæðu OR og tryggir upplýsingagjöf og samskipti á milli hagaðila.
Ber ábyrgð á sameiginlegri verkefnissýn, tryggir skýrar kröfur, fjarlægir hindranir og tryggir að rétt afurð sé framleidd.
Styðja við stöðugar umbætur, nýsköpun og tækniframfarir innan verkefnamiðaðrar menningar.
Auglýsing birt17. ágúst 2020
Umsóknarfrestur31. ágúst 2020
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Bæjarháls 1, 110 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar