Ert þú næsti hjúkrunarfræðingur Vinnuverndar?
Vegna aukinna umsvifa viljum við bæta við teymið okkar og leitumst eftir að ráða öflugan hjúkrunarfræðing til að slást í för með okkur.
Um er að ræða dagvinnu í 80 - 100% starfshlutfalli.
Vinnuvernd er framsækið þjónustu- og ráðgjafafyrirtæki sem leitast eftir því að efla heilbrigði einstaklinga og vellíðan á vinnustöðum. Hjá okkur starfar reynslumikill hópur fagfólks sem hefur sérhæft sig í þjónustu við atvinnulífið og einstaklinga. Teymið okkar samanstendur af hjúkrunarfræðingum, læknum, sálfræðingum, iðjuþjálfa, sjúkraþjálfara ásamt snillingum í móttöku, en öll sameinum við krafta okkar í faglegri þjónustu til viðskiptavina.
Í dag þjónustum við stolt fjölmörg íslensk fyrirtæki, stofnanir og sveitafélög og fer þeim ört fjölgandi.
Við erum á spennandi vegferð og við getum ekki beðið eftir því að bæta góðu fólki við hópinn okkar.
Við hlökkum til að heyra frá þér!
Um er að ræða fjölbreytt verkefni á sviði heilsueflingar, t.a.m. ýmis konar fræðsla, skyndihjálp, bólusetningar og heilsufarsskoðanir.
Próf og starfsréttindi sem hjúkrunarfræðingur
Áhugi á lýðheilsu og heilsueflingu
Góð færni í mannlegum samskiptum
Lausnamiðuð og fagmannleg vinnubrögð