
Reykjanesbær
Reykjanesbær er fjölskylduvænn bær sem þroskar og nærir hæfileika allra í gegnum öflugt skóla-, íþrótta-, og menningarstarf. Íbúar sinna fjölbreyttum störfum í vistvænu fjölmenningarsamfélagi sem einkennist af framsækni, eldmóði og virðingu.
Reykjanesbær hefur að markmiði að hafa ávallt á að skipa hæfum og
ánægðum starfsmönnum sem geta sýnt frumkvæði í störfum sínum og veitt bæjarbúum framúrskarandi þjónustu. Það er sameiginlegt verkefni starfsmanna og stjórnenda sveitarfélagsins að veita bæjarbúum sem allra besta þjónustu og sú samvinna byggir á gagnkvæmu trausti og virðingu fyrir ólíkum
sjónarmiðum.

Eignaumsýslusvið - Verkefnastjóri viðhalds og verkframkvæmda
Umhverfis- og framkvæmdasvið Reykjanesbæjar leitar að öflugum verkefnastjóra!
Reykjanesbær óskar eftir að ráða metnaðarfullan, skipulagðan og lausnamiðaðan einstakling með framúrskarandi samskiptahæfni til starfa á eignaumsýslusviði. Starfið er fjölbreytt og krefst frumkvæðis og ábyrgðar í vinnubrögðum. Gildi Reykjanesbæjar – virðing, eldmóður og framsækni – skulu endurspeglast í starfi og framkomu viðkomandi.
Um 100% starfshlutfall er að ræða. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með viðhaldi og verkframkvæmdum á eignaumsýslusviði.
- Gerð framkvæmdaáætlana og kostnaðargreining verka.
- Verkefnastýring og framkvæmdastýring.
- Eftirlit með framkvæmdum.
- Aðkoma að öðrum verkefnum eftir þörfum.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun í byggingafræði eða byggingaiðnfræði er kostur, en sambærileg menntun kemur einnig til greina.
- Sveinsbréf í iðn- eða tæknigreinum er kostur.
- Reynsla og þekking á byggingaframkvæmdum er skilyrði.
- Þekking á aðferðafræði verkefnastjórnunar er æskileg.
- Reynslan af sambærilegum störfum er kostur.
- Geta til að taka ákvarðanir og vinna sjálfstætt.
- Framúrskarandi samskiptahæfni bæði í töluðu og rituðu máli.
- Góð almenn tölvukunnátta.
- Góð íslensku- og enskukunnátta.
- Gild ökuréttindi eru skilyrði.
- Gerð er krafa um vammleysi, s.s. hafa gott orðspor; framkoma og hegðun bæði á vinnustað og utan hans þarf að vera í samræmi við starfið.
Auglýsing birt26. nóvember 2024
Umsóknarfrestur9. desember 2024
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Tjarnargata 12, 230 Reykjanesbær
Starfstegund
Hæfni
Almenn ökuréttindiFrumkvæðiJákvæðniMetnaðurOpinber stjórnsýslaSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðSkipulagTeymisvinnaVerkefnastjórnun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (12)

TDK Foil Iceland ehf óskar eftir að ráða Rafmagnsverkfræðing
TDK Foil Iceland ehf

Tæknimaður - uppsetning, gangsetning og þjónusta
Thor Ice Chilling Solution

Sérfræðingur í hönnunarstýringu búnaðar
Veitur

Sérfræðingur í hönnunarstýringu dreifikerfis
Veitur

Forstöðumaður umferðardeildar
Vegagerðin

Verkefnastjóri í fasteignum og viðhaldi
Landsnet hf.

Sérfræðingur við vega-, gatna- og stígahönnun
VSÓ Ráðgjöf ehf.

Efnaverkfræðingur á sviði umhverfisráðgjafar
VSÓ Ráðgjöf ehf.

Physics modelling of thermodynamics and heat transfer
Hydram Dynamics

Verkefnastjóri í framkvæmdadeild
Yrkir eignir ehf.

Áreiðanleikafræðingur
Norðurál

Skipulags- og byggingarfulltrúi Rangárþings eystra
Rangárþing eystra