
Seðlabanki Íslands
Seðlabanki Íslands er sjálfstæð stofnun í eigu ríkisins sem heyrir undir forsætisráðherra. Markmið bankans er að stuðla að stöðugu verðlagi, fjármálastöðugleika og traustri og öruggri fjármálastarfsemi. Þá skal bankinn sinna viðfangsefnum sem samrýmast hlutverki hans sem seðlabanka, svo sem að varðveita gjaldeyrisforða og stuðla að virku og öruggu fjármálakerfi. Hjá Seðlabankanum starfar öflug liðsheild og leggur bankinn ríka áherslu á metnaðarfullt og hvetjandi starfsumhverfi sem einkennist af trausti, fagmennsku, þekkingu og framsækni.

DevOps sérfræðingur
SEÐLABANKI ÍSLANDS óskar eftir að ráða metnaðarfullan og þjónustulundaðan einstakling í starf DevOps sérfræðings í deild þróunar á sviði upplýsingatækni og gagnasöfnunar.
Sviðið sér um þróun, rekstur og viðhald á tölvukerfum, gagnaumhverfi og hugbúnaði bankans. Deildin samanstendur af teymum hugbúnaðarsérfræðinga, sérfræðinga í gagnasamþættingu og DevOps. Við leitum nú að sérfræðingi í DevOps teymið til að vinna að umbótum í þróunar- og rekstrarumhverfi hugbúnaðarlausna okkar.
Menntunar- og hæfniskröfur
Menntun sem nýtist í starfi, t.d. á sviði kerfisreksturs, tölvunarfræði eða verkfræði
Reynsla af hugbúnaðarþróun og/eða kerfisrekstri
Reynsla og/eða þekking á Microsoft umhverfi (SQL, IIS, o.fl.) er kostur
Reynsla af innleiðingu eða nýtingu DevOps aðferðafræði ásamt CI/CD flæði er kostur
Þekking á Oracle gagnagrunnum er kostur
Þekking á uppsetningu vöktunar á tölfræði um afköst, notkun og atvik er kostur
Þekking á skriftumálum, t.d. PowerShell, Python eða öðrum skriftumálum er kostur
Lipurð í mannlegum samskiptum og hæfni til að starfa sjálfstætt og í hóp
Helstu verkefni og ábyrgð
Innleiða og styðja við vöktun á afköstum, notkun og villum í kerfum Seðlabankans
Móta skilvirka ferla í þróun og viðhaldi hugbúnaðar í samstarfi við hagsmunaaðila (CI/CD flæði)
Styðja við rekstur og framþróun á viðskiptakerfi bankans
Efla útgáfustjórnun og auka sjálfvirkni í útgáfu hugbúnaðarlausna
Efla sjálfvirkar prófanir á hugbúnaði og gögnum
Auglýsing birt20. janúar 2023
Umsóknarfrestur1. febrúar 2023
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Kalkofnsvegur 1, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Hönnun gagnagrunnaMetnaðurPythonSQLÞjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Hugbúnaðarsérfræðingur
Skræða ehf

Sérfræðingur í Microsoft lausnum
Advania

Ert þú næsta tækniborðshetja Sensa?
Sensa ehf.

Tæknimanneskja óskast
Rótgróið upplýsingatæknifyrirtæki

Full stack forritari | Gervigreind og sjálfvirknivæðing
KPMG á Íslandi

Hugbúnaðarsérfræðingur
Skatturinn

Sérfræðingur í þróun gagnalíkana og greiningu gagna
Fjársýslan

Viltu byggja AI-agenta sem fara í raunverulega notkun?
Fjársýslan

Engineering Manager
Fenris Creations

Hugbúnaðarsérfræðingur
Íslandsbanki

Laust starf net- og kerfisstjóra á skrifstofu Alþingis
Skrifstofa Alþingis

Við leitum að kerfisstjóra!
Myllan