
Isavia / Keflavíkurflugvöllur
Isavia sér um rekstur og þróun Keflavíkurflugvallar sem er einn stærsti og líflegasti vinnustaður landsins. Hér stíga landsmenn fyrstu skrefin í átt að nýjum ævintýrum og erlendir gestir hefja Íslandsdvöl sína eða halda leið sinni áfram út í heim.
Keflavíkurflugvöllur, eða KEF er stórt samfélag með umfangsmikla starfsemi. Öll vinnum við saman að því að tryggja einstaka upplifun fyrir viðskiptavini okkar, farþegana og flugfélögin sem eiga leið um flugvöllinn.

Deildarstjóri framkvæmdadeildar
Isavia leitar að metnaðarfullum leiðtoga með stjórnunarreynslu í hlutverk deildarstjóra framkvæmdadeildar á Keflavíkurflugvelli. Viðkomandi mun stýra og bera ábyrgð á daglegum rekstri og fylgja eftir hönnun og framkvæmdum á Keflavíkurflugvelli í samræmi við þarfir viðskiptavina með skilvirkni og hagkvæmi að leiðarljósi. Verkefnin eru unnin með innlendum og erlendum sérfræðingum. Viðkomandi þarf að hafa reynslu á hönnun og framkvæmdum og auk þess brennandi áhuga á að starfa í spennandi og síbreytilegu umhverfi á alþjóðaflugvelli.
Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólamenntun á sviði verkfræði eða byggingatæknifræði
Stjórnunarreynsla og leiðtogahæfni
Reynsla af sambærilegu starfi við rekstur og viðhald bygginga og tæknikerfa
Frumkvæði, þjónustulund, skipulögð vinnubrögð
Framúrskarandi samskiptafærni
Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti
Geta til að tjá sig faglega á ensku, í rituðu og mæltu máli
Helstu verkefni og ábyrgð
Ábyrgð á daglegri stjórnun deildar og samræming á verkefnum
Skipulagning hönnunar og framkvæmdar þvert á verkefni
Samskipti við haghafa og Samgöngustofu
Gerð rekstraráætlana og rekstrarspá deildarinnar
Þátttaka í gerð langtímaáætlana, hönnunargagna og útboðsgagna
Ábyrgð á gerð leiðbeininga, ferla og verklagsreglna sem snúa að hönnun og framkvæmd
Önnur verkefni í samráði við forstöðumann og framkvæmdastjóra
Auglýsing birt4. janúar 2022
Umsóknarfrestur16. janúar 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Keflavíkurflugvöllur, 235 Reykjanesbær
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiLeiðtogahæfniMetnaðurSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðSkipulagÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Sérfræðingur í iðnstýringum
EFLA hf

Hjúkrunardeildarstjóri dag- og göngudeildar blóð- og krabbameinslækninga
Landspítali

Viltu taka þátt í að móta framtíð aflstöðva okkar?
Landsvirkjun

Forstöðumaður umferðardeildar
Vegagerðin

Verkefnastjóri byggðaþróunar og orkumála
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra

Skipulags- og byggingarfulltrúi Rangárþings eystra
Rangárþing eystra

TDK Foil Iceland ehf óskar eftir að ráða Rafmagnsverkfræðing
TDK Foil Iceland ehf

Jarðvarmasérfræðingur
EFLA hf

Tæknisérfræðingur
Korda

Commissioning Manager
atNorth

Engineering Manager
Fenris Creations

Sérfræðingur í innkaupum
Isavia / Keflavíkurflugvöllur