
Vinaminni
Vinaminni er sérhæfð dagdvöl fyrir fólk með heilabilun. Dagdvöl sem þessi er mikilvæg til þess að virkja þann sem er með heilabilun, örva og hvetja til alls þess sem hann ræður við. Efla sjálfstraust og draga úr vanlíðan og vanmætti. En dagdvölin er ekki síður mikilvæg til að geta létt undir með ástvinum og aðstandendum og veita þeim ráðgjöf og stuðning til að takast á við þau vandamál sem upp kunna að koma.
Hlutverk starfsmannanna er að þjálfa, styðja og styrkja vitsmunalega og líkamlega hæfni einstaklingsins svo að hann geti viðhaldið sjálfstæði sínu eins lengi og kostur.
Mottó okkar er að öllum líði vel og hlakki til að koma til okkar á morgnana. Við leggjum okkur fram um að skapa rólegt og notalegt andrúmsloft í Vinaminni og hafa hlýju og umhyggju að leiðarljósi.

Dagþjálfun Vinaminni óskar eftir leiðbeinanda
Dagþjálfun Vinaminni óskar eftir starfsmanni í 94% starf í stöðu leiðbeinanda. Vinaminni er sértæk dagþjálfun fyrir einstaklinga með heilabilun. Unnið er alla virka daga frá kl: 8:30 – 15:30, frí um helgar og rauða daga. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. eða samkvæmt nánara samkomulagi.
Starfsmaður í dagdvöl starfar samkvæmt lögum og reglugerð sem við eiga og samkvæmt stefnu Sveitarfélagsins Árborgar.
Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 12.000 íbúar og starfa um 1000 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umönnun þjónustuþega
- Stýra virknistarfi þjónustuþega
- Veita þjónustuþegum félagsskap og stuðning
- Sinnir þeim verkefnum sem yfirmaður felur
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynslu af vinnu með öldruðum og einstaklingum með heilabilunarsjúkdóma æskileg
- Frumkvæði, metnaður, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
- Færni í mannlegum samskiptum og samvinnu áskilin
- Góð íslenskukunnátta áskilin
- Jákvæðni, þolinmæði, stundvísi og heiðarleiki áskilin
Auglýsing birt7. október 2025
Umsóknarfrestur17. október 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn
Staðsetning
Vallholt 19, 800 Selfoss
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiHeiðarleikiJákvæðniMannleg samskiptiMetnaðurSjálfstæð vinnubrögðSkipulagStundvísiÞolinmæði
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Okkur vantar starfsfólk í aðhlynningu
Kjarkur endurhæfing

NPA aðstoðarkona/maður óskast í 50-70% dagvinnustarf.
FOB ehf.

Starfsmaður í dagþjálfun - Laugarás
Hrafnista

Framtíðarstarf í umönnun - Sléttuvegur
Hrafnista

Frístundaleiðbeinandi/ráðgjafi með umsjón
Hitt húsið

Skóla- og frístundaliðar í frístundaheimilið Hraunkot - Víðistaðaskóli
Hafnarfjarðarbær

Aðstoðarkona óskast í fjölbreytt starf
NPA miðstöðin - Ísafjörður

Aðstoðarkona óskast til starfa
Heiða slf

Starfsmaður í dagdvöl Höfða
Höfði hjúkrunar- og dvalarheimili

Starfsfólk óskast í vaktavinnu á fjölskylduheimili
Fjölskylduheimilið Hrafnkatla

Stuðningsfulltrúi óskast á íbúðarkjarna
Ás styrktarfélag

Hlutastörf í nýjum íbúðarkjarna.
Skrifstofa starfsstöðva og þróunar