Vinaminni
Vinaminni
Vinaminni

Dagþjálfunin Vinaminni óskar eftir aðstoðarmatráð

Dagdvölin Vinaminni óskar eftir aðstoðarmatráð í eldhús í 60% starf sem fyrst. Um er að ræða tímabundna stöðu til eins árs. Vinaminni er sértæk dagþjálfun fyrir einstaklinga sem eru með heilabilun. Unnið er alla virka daga frá 8:30-13:00, frí um helgar og rauða daga.

Starfsmaður í eldhúsi starfar samkvæmt lögum og reglugerð sem við eiga og samkvæmt stefnu Sveitarfélagsins Árborgar.

Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 12.000 íbúar og starfa um 1000 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Undirbúa og framreiða hádegismat sem kemur í hús. 
  • Undirbúningur síðdegiskaffis 
  • Matarinnkaup og pöntun vara eftir þörfum í samráði við forstöðumann 
  • Þrífa og ganga frá að loknu starfi 
  • Taka á móti hráefni, meðhöndla það til geymslu, vinna það fyrir matreiðslu og matreiða eftir þörfum á viðeigandi hátt samkvæmt leiðbeiningum 
  • Veita þjónustuþegum félagsskap og stuðning 
  • Sinnir þeim verkefnum sem yfirmaður felur 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af starfi í mötuneyti eða skólaeldhúsa æskileg 
  • Frumkvæði, metnaður, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð 
  • Færni í mannlegum samskiptum áskilin 
  • Íslenskukunnátta áskilin 
  • Jákvæðni, þolinmæði, stundvísi og heiðarleiki áskilin 
Auglýsing birt2. október 2025
Umsóknarfrestur13. október 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Vallholt 19, 800 Selfoss
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.Þolinmæði
Starfsgreinar
Starfsmerkingar