Bláskógabyggð
Bláskógabyggð

Byggðaþróunarfulltrúi í Uppsveitum Árnessýslu

Sveitarfélögin Bláskógabyggð, Grímsnes- og Grafningshreppur, Hrunamannahreppur og Skeiða- og Gnúpverjahreppur í samstarfi við Samtök sunnlenskra sveitarfélaga auglýsa laust til umsóknar starf byggðaþróunarfulltrúa.

Byggðaþróunarfulltrúi veitir ráðgjöf og handleiðslu á sviði atvinnu- og byggðaþróunar, vinnur að upplýsingaöflun, miðlun upplýsinga og svæðisbundnum verkefnum á sviði byggðaþróunar, auk þess kemur hann að ferðatengdum málum og fjölmenningu. Byggðaþróunarfulltrúi sinnir verkefnum í samráði við sveitarfélögin fjögur og Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS). Einnig starfar fulltrúinn með samstarfshópi samtakanna og öðrum byggðaþróunarfulltrúum á Suðurlandi.

Um tímabundna ráðningu er að ræða til ársloka 2027 og starfshlutfall allt að 100%. Viðkomandi hefur aðalstarfsstöð á skrifstofum Bláskógabyggðar í Aratungu, Reykholti, en hefur einnig fasta viðveru á skrifstofum hinna sveitarfélaganna þriggja. Næsti yfirmaður er sveitarstjóri Bláskógabyggðar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Veita ráðgjöf og handleiðslu á sviði atvinnuþróunar, nýsköpunar og menningarmála með sérstaka áherslu á umsækjendur og styrkþega Uppbyggingarsjóðs Suðurlands
  • Aðkoma að fræðslu og þjálfun fyrir frumkvöðla
  • Vinna við söfnun og greiningu upplýsinga á sviði atvinnu- og byggðamála
  • Vinna að upplýsingamiðlun um stoðkerfi atvinnuþróunar, nýsköpunar, menningar og byggðamála
  • Hvetja hagaðila innan svæðis til verkefnaþróunar og þátttöku í samstarfsverkefnum
  • Styðja við stefnumörkun sveitarfélaganna á sviði byggðamála og framfylgir einstökum aðgerðum
  • Vinna að og þróa svæðisbundin verkefni að eigin frumkvæði og í samstarfi við hagaðila
  • Vinna að innleiðingu og eftirfylgni sameiginlegrar atvinnustefnu sveitarfélaganna
  • Vinna að ferðatengdum málum, m.a. ráðgjöf og upplýsingamiðlun og þátttaka í faghópi sveitarfélaga á Suðurlandi og Markaðsstofu Suðurlands
  • Aðkoma að fjölmenningarmálum, þ.m.t. gerð móttökuáætlunar
  • Viðkomandi vinnur í samstarfi við oddvita og sveitarstjóra sveitarfélaganna fjögurra
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af verkefnastjórnun og/eða ráðgjöf æskileg
  • Góð færni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund
  • Góð tölvufærni og hæfni í tjáningu í ræðu og riti (á íslensku)
  • Frumkvæði í starfi og samstarfsfús
  • Hæfni í að tileinka sér nýja þekkingu og miðla henni áfram
  • Þekking á nærsamfélaginu og áhugi á að efla sitt tengslanet
Auglýsing birt28. ágúst 2025
Umsóknarfrestur11. september 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Aratunga 167193, 801 Selfoss
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Framkoma/FyrirlestarPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.VerkefnastjórnunPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar