Ístak hf
Ístak hf
Ístak hf

BIM sérfræðingur

Vilt þú taka þátt í stafrænni þróun í mannvirkjagerð?

Vegna góðrar verkefnastöðu leitar Ístak að metnaðarfullum og lausnamiðuðum sérfræðingi með brennandi áhuga á BIM (Building Information Modelling) og stafrænum lausnum í mannvirkjagerð.

Ístak er leiðandi verktakafyrirtæki og hluti af danska verktakafyrirtækinu Per Aarsleff og tökum að okkur fjölbreytt verkefni á sviði bygginga, virkjana, stóriðju, jarðvinnu, hafnargerðar, vega- og brúargerð.

Sem hluti af öflugu BIM teymi Ístaks tekur þú þátt í fjölbreyttum og krefjandi BIM verkefnum á mismunandi stigum, allt frá tilboðsgerð, hönnunarrýni, framleiðslu og afhendingar. Þú kemur jafnframt að þróunar- og umbótaverkefnum sem tengjast BIM og stafrænum lausnum innan fyrirtækisins.

Starfið býður upp á tækifæri til að þróa þína hæfni í alþjóðlegu umhverfi og tengjast öflugu þekkingarneti innan samsteypunnar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með gerð framleiðslulíkana t.a.m. stafræn járnbending
  • BIM stjórnun á framkvæmdastigi og á hönnunarstigi í alútboðum
  • Gerð upplýsinga og gagna byggða á líkönum, m.a. magntökur og áætlanir
  • Rýni, samræming og árekstrargreiningar á líkönum og miðlun niðurstaðna
  • Umsjón með ýmsum stafrænum lausnum s.s. verkefnavefum,
  • Þátttaka í þróunar- og umbótarverkefnum innan deildarinnar
  • Fræðsla og stuðningur til annarra starfsmanna um notkun stafrænna lausna og BIM
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. verkfræði, tæknifræði eða byggingafræði
  • Þekking á BIM aðferðafræði og ferlum í mannvirkjagerð
  • Reynsla í einhverjum af eftirfarandi forritum: Tekla Structures, Revit, Solibri, Navisworks, Dynamo, Grasshopper
  • Hæfni til að lesa, skilja og vinna með teikningar og önnur hönnunargögn
  • Góð kunnátta í Microsoft Office
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum, frumkvæði og metnaður til að miðla þekkingu
  • Góð kunnátta í íslensku og ensku, kunnátta í norðurlanda tungumáli kostur
Fríðindi í starfi
  • Aðgang að öflugu þekkingarneti innan Ístaks og Per Aarsleff
  • Sterkt bakland í BIM/VDC, með áherslu á áframhaldandi þróun og nýsköpun
  • Tækifæri til að vaxa í starfi, sækja námskeið og taka þátt í þróun faglegra ferla
  • Fjölbreytt verkefni, þar sem þú hefur raunveruleg áhrif á framkvæmd og niðurstöðu
  • Vinnuumhverfi sem styður samvinnu, fagmennsku og stöðuga þróun

Nánari upplýsingar veitir mannauðsdeild Ístaks á netfanginu [email protected].

Auglýsing birt3. nóvember 2025
Umsóknarfrestur17. nóvember 2025
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Bugðufljót 19, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ByggingafræðingurPathCreated with Sketch.TæknifræðingurPathCreated with Sketch.Verkfræðingur
Starfsgreinar
Starfsmerkingar