
Ístak hf
Við erum framsækið verktakafyrirtæki þar sem framkvæmdagleði er í fyrirrúmi. Við veitum ávallt bestu þjónustu sem völ er á og leggjum metnað í að uppfylla kröfur viðskiptavina okkar. Við önnumst verkefni á borð við byggingar, virkjanir, álversframkvæmdir og hafnarframkvæmdir auk vega- og brúargerðar.
Hjá Ístaki starfa hátt á fimmta hundrað manns við spennandi og fjölbreytt verkefni. Við kappkostum að vera eftirsóknarverður vinnustaður í byggingageiranum þar sem hver starfsmaður er metinn að verðleikum eftir hæfni og frammistöðu án tillits til kyns, aldurs eða þjóðernis. Við leggjum mikið upp úr góðu og sveigjanlegu starfsumhverfi fyrir starfsfólkið okkar og styðjum vel við öflugt starfsmannafélag.
Kynntu þér störf í boði eða leggðu inn almenna umsókn.

Verkefnastjóri áætlunargerðar
Ístak leitar að skipulögðum og metnaðarfullum verkefnastjóra áætlunargerðar til að leiða þróun og umgjörð áætlana og tryggja vandaða áætlunargerð sem endurspeglar markmið og kröfur verkefna.
Ístak er leiðandi verktakafyrirtæki og hluti af danska verktakafyrirtækinu Per Aarsleff og tekur að sér fjölbreytt verkefni á sviði bygginga, virkjana, stóriðju, jarðvinnu, hafnargerðar, vega- og brúargerð.
Í starfinu þarft þú að nýta faglega reynslu þína í að þróa og efla hvernig Ístak áætlar, samhæfir tíma- og kostnaðaráætlanir og tryggjir að allt gangi upp í rauntíma. Þú munt starfa þvert á deildir og vera tengiliður milli hönnunar, framkvæmda og fjármála, með það að markmiði að tryggja skilvirka nýtingu mannafla, búnaðar og fjármuna.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Leiða og stýra gerð tímaáætlana á öllum stigum framkvæmda.
- Þróa faglegar aðferðir til að samþætta tíma- og kostnaðaráætlanir.
- Rýna hönnunar- og verkgögn og greina áhættur og koma með tillögur til úrbóta.
- Tryggja að áætlanir séu uppfærðar reglulega og endurspegli raunverulega stöðu verkefna.
- Halda yfirsýn yfir allar áætlanir fyrirtækisins og stuðla að samræmingu þeirra.
- Þátttaka í þróun og innleiðingu nýrra aðferða og verkfæra, með nýsköpun og stafræna þróun í forgrunni.
- Samstarf við helstu stjórnendur og deildir um áætlanagerð, auðlindanýtingu og framvindu verkefna.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. verkfræði, tæknifræði eða byggingafræði.
- Haldbær reynsla verkefnastjórnun og verkáætlunargerð.
- Reynsla af verklegum framkvæmdum eða þekking á aðstæðum á verkstað mikill kostur.
- Góð kunnátta á áætlunartólum (t.d. Primavra, MS project) og gagnagreiningum.
- Leiðtogahæfni, frumkvæði og færni til að miðla þekkingu.
- Nákvæmni og lausnamiðuð hugsun og faglegt viðmót.
Auglýsing birt4. nóvember 2025
Umsóknarfrestur16. nóvember 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Bugðufljót 19, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Sérfræðingur í stýri- og sjálfvirknikerfum
Samherji fiskeldi ehf.

Listasafnið á Akureyri: Verkefnastjóri sýninga
Akureyri

Verkefnastjóri samfélags- og uppbyggingarverkefna hjá Húnabyggð
Húnabyggð

Sölustjóri vöruflokka
Steypustöðin

Byggingafulltrúi
Bolungarvíkurkaupstaður

Verkstjóri - Klasi
Klasi

Machine Designer
Embla Medical | Össur

Framkvæmdastjóri Rent A Party
Rent-A-Party

Viltu umbreyta flóknum greiningum í hagnýtar ákvarðanir?
Keflavíkurflugvöllur | Isavia

Verkstjóri / verkefnastjóri í byggingarframkvæmdum
Landris Byggingar ehf.

Verkefnastjóri - Heyrnar og talmeinastöð HH
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Layout Engineer
JBT Marel