Brimborg
Brimborg
Brimborg

Bifvélavirki Ford

Ford verkstæði Brimborgar við Bíldshöfða 6 í Reykjavík leitar að hæfileikaríkri og duglegri manneskju í starf bifvélavirkja í bilanagreiningu og viðgerðir á Ford bílum. Ford er einn stærsti bílaframleiðandi í heimi og býður gríðarlegt úrval fólksbíla, jeppa, pallbíla og sendibíla fyrir einstaklinga og fyrirtæki.

Starfið er einstaklega lifandi og skemmtilegt þar sem unnið er við nýjustu bílatækni í framúrskarandi vinnuaðstöðu með öflugan búnað til. Allt kapp er lagt á að gera öll störf eins létt og kostur er með margvíslegum búnaði.

Starfsmannaaðstaða er einstök með framúrskarandi búningsaðstöðu ásamt því að öflugt starfsmannafélag er starfrækt hjá Brimborg.

Við leitum að manneskju, konu eða karli, til að ganga til liðs við Ford þjónustuteymi Brimborgar í framúrskarandi vinnuumhverfi sem þykir spennandi að vinna við nýjustu tækni í frábærum hóp tæknimanna með góðum stuðningi samstarfsfólks og stjórnenda þar sem eru miklir möguleikar til símenntunar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vinna við bilanagreiningu, þjónustu og viðgerðir á Ford bílum
  • Þátttaka í þjálfun og símenntun
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Snyrtimennska, stundvísi og áreiðanleiki
  • Réttindi í bifvélavirkjun eða mikil reynsla af bílaviðgerðum
  • Heiðarleg, áreiðanleg og vönduð vinnubrögð
  • Geta sýnt frumkvæði í starfi og unnið sjálfstætt
  • Gilt bílpróf
Fríðindi í starfi
  • Margvísleg fríðindi sbr. mannauðsstefnu Brimborgar 
  • Niðurgreiddur hádegismatur
  • Afsláttur af vöru og þjónustu fyrirtækisins

 

Auglýsing stofnuð2. júlí 2024
Umsóknarfrestur11. ágúst 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaMeðalhæfni
EnskaEnskaMeðalhæfni
Staðsetning
Bíldshöfði 6, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.BifvélavirkjunPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.SveinsprófPathCreated with Sketch.VandvirkniPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar