Brimborg
Brimborg
Brimborg

Nemi í bifvélavirkjun

Ford, Volvo og Polestar verkstæði Brimborgar við Bíldshöfða 6 í Reykjavík leitar að öflugum nemum í bifvélavirkjun til starfa.

Starfið er einstaklega lifandi og skemmtilegt þar sem unnið er við nýjustu bílatækni í framúrskarandi vinnuaðstöðu með öflugan búnað til. Allt kapp er lagt á að gera öll störf eins létt og kostur er með margvíslegum búnaði.

Starfsmannaaðstaða er einstök með framúrskarandi búningsaðstöðu ásamt því að öflugt starfsmannafélag er starfrækt hjá Brimborg.

Við leitum að nemum í bifvélavirkjun til að ganga til liðs við Ford, Volvo og Polestar þjónustureymi Brimborgar í framúrskarandi vinnuumhverfi sem þykir spennandi að vinna við nýjustu tækni í frábærum hóp tæknimanna með góðum stuðningi starfsfólks og stjórnenda þar sem eru miklir möguleikar til símenntunar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vinna við bilanagreiningu, þjónustu og viðgerðir á Ford, Volvo og Polestar bílum undir stjórn meistara
  • Þátttaka í þjálfun og símenntun
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Nemi í bifvélavirkjun (hefur lokið 2 faglotum)
  • Snyrtimennska, stundvísi og áreiðanleiki
  • Heiðarleg, áreiðanleg og vönduð vinnubrögð
  • Gilt bílpróf
Fríðindi í starfi
  • Margvísleg fríðindi sbr. mannauðsstefnu Brimborgar
  • Niðurgreiddur hádegismatur
  • Afsláttur af vöru og þjónustu fyrirtækisins
Auglýsing stofnuð3. júlí 2024
Umsóknarfrestur11. ágúst 2024
Tungumálahæfni
EnskaEnskaMeðalhæfni
ÍslenskaÍslenskaMeðalhæfni
Staðsetning
Bíldshöfði 6, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.VandvirkniPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar