Barnaskóli Kársness
Barnaskóli Kársness
Barnaskóli Kársness

Aðstoðarskólastjóri Barnaskóla Kársness

Við Skólagerði í Kópavogi er að rísa ný og nútímaleg skólabygging, þar sem áður stóð gamli Kársnesskóli. Nýr skóli mun taka þar til starfa haustið 2025 - Barnaskóli Kársness.

Skólinn mun hýsa fjögurra deilda leikskóla og yngsta stig grunnskóla ásamt frístund. Byggingin verður öll hin glæsilegasta sem skapar spennandi tækifæri í skólastarfi. Í skólanum verða um 100 leikskólabörn og um 300 nemendur í 1.-4. bekk.

Leitað er að öflugum og metnaðarfullum aðstoðarskólastjóra í stjórnendateymi sem hefur góða hæfni til að leiða saman hóp og skapa öfluga liðsheild, auk vilja til að þróa framsækið skólastarf. Viðkomandi einstaklingur þarf að vera skipulagður og umbótadrifinn. Aðstoðarskólastjóri er staðgengill skólastjóra og hefur hlutverk sem faglegur leiðtogi sem tekur þátt í að byggja upp jákvæðan skólabrag og skapandi skólastarf í stöðugri þróun í samvinnu við börn, starfsfólk, foreldra og skólayfirvöld.

Um er að ræða spennandi tækifæri fyrir framsækinn og árangursdrifinn einstakling sem vill leiða uppbyggingu og mótun skólastarfs í nýjum skóla, börnum til heilla.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ber ásamt skólastjóra ábyrgð á að unnið sé eftir aðalnámskrám leik- og grunnskóla.
  • Faglegur leiðtogi við framkvæmd og mótun skólastarfs og skólabrags.
  • Umsjón með skipulagi daglegs skólastarfs, stjórnun og árangursríku samstarfi og samfellu milli skólastiga í samstarfi við stjórnendateymi.
  • Umsjón með stjórnun og skipulagi mannauðs í samstarfi við skólastjóra, þar með talin þátttaka í ráðningum kennara og annars starfsfólks.
  • Leiðandi í stefnumótun og áætlanagerð.
  • Stuðlar að velferð og vellíðan nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
  • Ber ábyrgð á að leiða árangursríkt skólastarf í samreknum leik- og grunnskóla og stuðla að góðu samstarfi við nærsamfélagið, foreldra, skólayfirvöld og skólasamfélagið í heild.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Kennaramenntun og leyfisbréf kennara.
  • Framhaldsmenntun (M.Ed., MA, MBA eða Diplóma að lágmarki) á sviði uppeldis- og menntunarfræða, stjórnunar eða á öðru sviði sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af kennslu á grunnskólastigi er skilyrði. 
  • Reynsla af stjórnun og faglegri forystu í skólastarfi.
  • Leiðtogahæfni, góð hæfni í samskiptum og skipulagshæfileikar.
  • Frumkvæði, sjálfstæði, lausnamiðuð hugsun og metnaður til að ná árangri í starfi.
  • Góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig bæði í ræðu og riti.
Fríðindi í starfi

Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins

Auglýsing birt19. maí 2025
Umsóknarfrestur2. júní 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Skólagerði
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar