Aðstoðarleikskólastjóri í leikskólanum Hólmasól á Akureyri
Hjallastefnuleikskólinn Hólmasól á Akureyri óskar eftir aðstoðarleikskólastjóra
Ábyrgðasvið
-
Er aðstoðarmaður leikskólastjóra og ber ásamt honum ábyrgð á rekstri leikskólans.
-
Er staðgengill í fjarveru leikskólastjóra og starfar þá samkvæmt starfslýsingu hans.
-
Vinnur ásamt leikskólastjóra að daglegri stjórnun leikskólans og skipulagningu uppeldisstarfsins.
-
Starfar með börnum eftir þörfum.
-
Ber ásamt leikskólastjóra ábyrgð á að unnið sé samkvæmt stefnu og handbók Hjallastefnunnar í öllu starfi skólans.
-
Ber ásamt leikskólastjóra ábyrgð á að unnið sé eftir aðalnámskrá leikskóla og skólanámskrá leikskólans, að áætlanir þar um séu gerðar og reglulegt mat fari fram.
-
Ber ásamt leikskólastjóra ábyrgð á að bregðast við frávikum í starfi skólans frá ríkjandi stefnu, handbók, rekstraráætlunum og/eða námskrám.
- Kennaramenntun
- Reynsla af leikskólastarfi
- Reynsla af stjórnun
- Frumkvæði í starfi og rík þjónustulund
- Tæknilæsi, útsjónarsemi og góð yfirsýn
- Menntun í rekstri og/eða stjórnun er góður kostur
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Þekking á Karellen umsjónarkerfi er góður kostur
- Jákvæðni og færni í mannlegum samskiptum