Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Tónmenntakennari - Skarðshlíðarskóli

Skarðshlíðarskóli óskar eftir drífandi og kraftmiklum tónmenntarkennara til að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi með okkur í 100% starf. Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2025.

Í Skarðshlíðarskóla eru áhugasamir og skemmtilegir nemendur, metnaðarfullt starfsfólk og öflugur foreldrahópur. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda, teymiskennslu, fjölbreytta kennsluhætti, SMT skólafærni og að allir nemendur nái góðum árangri í leik og starfi. Mílan er órjúfanlegur hluti af skólastarfinu en í því felst að nemendur og starfsfólk fer út daglega og gengur, skokkar eða hleypur í 15 mínútur.

Gildi skólans eru samvinna, vinátta og þrautseigja.

Innleiðing á UDL (Universal Design for Learning) hófst haustið 2020. UDL veitir nemendum möguleika á að læra á ólíka vegu og að sýna kunnáttu sína á ólíka hátt. Nemendur eru virkir og hafa áhrif á eigið nám.

Skarðshlíðarskóli er heildstæður grunnskóli með nemendur í 1. til 10.bekk. Nú eru um 490 nemendur í skólanum. Skólahúsnæðið er glæsilegt og er skólinn vel tækjum búinn, með íþróttahús, útibú frá Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og fjögurra deilda leikskóli í samtengdu skólahúsnæði. Í haust hefst öflugt samstarfsverkefni milli leik, grunn og tónlistarskóla.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Tónmenntakennsla í grunnskólanum
  • Tónmenntakennsla í leikskólanum í sama húsnæði
  • Forskólatími í sama húsnæði
  • Halda utan um samstarfsverkefni leik-, grunn- og tónlistarskólans sem er 25% af starfinu
  • Taka þátt í uppbyggingu á nýju og skólasamfélagi í samvinnu við stjórnendur
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf skal fylgja umsókn)
  • Haldgóð þekking á kennslufræði tónmenntakennslu
  • Tónlistarmenntun sem nýtist í starfi
  • Leikni í fjölbreyttum kennsluháttum, námaðlögun og samþættingu
  • Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
  • Stundvísi og samviskusemi
  • Mjög góða íslenskukunnátta

Skilyrði við ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Nánari upplýsingar veitir Ingibjörg Magnúsdóttir, skólastjóri, í síma 6645871/ [email protected]

Umsóknarfrestur hefur verið framlengdur og er til og með 13. maí 2025.

Greinagóð ferilsskrá fylgi umsókn.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.

Utworzono ofertę pracy29. April 2025
Termin nadsyłania podań13. May 2025
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Doskonale
Lokalizacja
Hádegisskarð 1, 221 Hafnarfjörður
Rodzaj pracy
Zawody
Oznaczenia