Kársnesskóli
Kársnesskóli
Kársnesskóli

Stærðfræðikennari á unglingastigi óskast

Kársnesskóli óskar eftir drífandi, kraftmiklum kennara á unglingastig til að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi

Laus er til umsóknar stærðfræðikennarastaða á elsta stigi skólans. Kársnesskóli er framsækinn grunnskóli í vesturbæ Kópavogs sem byggður er á gömlum gildum en er nú nýr skóli með nemendum í 5. - 10.bekk. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda, fjölbreytta kennsluhætti og að allir nemendur nái árangri. Í skólanum eru um 400 nemendur. Unnið er samkvæmt uppeldisstefnunni Uppeldi til ábyrgðar. Í Kársnesskóla eru allir nemendur í 5.-10.bekk með spjaldtölvur og áhersla er á gott samstarf í góðum teymum.

Gildi skólans eru virðing, þekking, ábyrgð og ánægja.

Ráðningartími og starfshlutfall Um er að ræða 100% framtíðarstarf

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Stærðfræðikennsla á unglingastigi ásamt teymisvinnu og kennslu í þematengdum verkefnum
  • Umsjón á unglingastigi
  • Taka þátt í uppbyggingu og mótun skólastarfsins
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagfólk
  • Vinna samkvæmt stefnu skólans
  • Vinna að því að skapa góðan skólabrag

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leyfisbréf til kennslu
  • Reynsla af kennslu í grunnskóla er æskileg
  • Áhugi á að vinna í góðu teymi
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Einlægur áhugi á að vinna með börnum og unglingum
  • Þolinmæði og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Stundvísi og áreiðanleiki er skilyrði

Frekari upplýsingar

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ

Upplýsingar gefa skólastjóri, Björg Baldursdóttir og Sigrún Valdimarsdóttir aðstoðarskólastjóri í síma 441-4600

Öll, óháð kyni eru hvött til að sækja um starfið.

Utworzono ofertę pracy28. April 2025
Termin nadsyłania podań12. May 2025
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Ojczysty
Lokalizacja
Kópavogsbraut 47, 200 Kópavogur
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.NauczycielPathCreated with Sketch.UczeniePathCreated with Sketch.PunktualnośćPathCreated with Sketch.Cierpliwość
Zawody
Oznaczenia