Urriðaholtsskóli
Urriðaholtsskóli
Urriðaholtsskóli

Urriðaholtsskóli auglýsir eftir aðstoðarleikskólastjóra

Urriðaholtsskóli er samrekinn leik- og grunnskóli í Garðabæ. Auglýst er eftir aðstoðarskólastjóra á leikskólastig til að taka þátt í að móta og byggja upp skólasamfélag þar sem áhersla er á skapandi starf með einstaklinginn í fyrirrúmi. Á næsta skólaári verða um 190 leikskólabörn á 10 deildum frá eins til 5 ára.

Teymiskennsla er einkennandi fyrir starfshætti skólans bæði á meðal nemenda og starfsmanna, svo og á milli skólastiga og rík áhersla lögð á jákvætt og uppbyggilegt starfsumhverfi.

Gildi skólans eru: Virðing, ábyrgð og umhverfi.
Starfsumhverfi er gott og lögð rík áhersla á að vinna eftir gagnreyndum aðferðum sem og að veita foreldrum fræðslu og uppeldisráðgjöf.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Er aðstoðarmaður skólastjóra og ber ásamt honum ábyrgð á daglegu rekstri leikskólastigs
  • Er staðgengill í fjarveru skólastjóra
  • Vinnur ásamt skólastjóra að daglegri stjórnun leikskólastigs og skipulagningu uppeldisstarfs
  • Sinnir þjálfun og ráðgjöf til starfsfólks
  • Sinnir fræðslu og ráðgjöf um þroska barna og uppeldi til foreldra
  • Sinnir þeim verkefnum sem yfirmaður felur honum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Að lágmarki 60 námseiningar í uppeldis- og kennslufræðigreinum
  • Sérhæfð hæfni sem snýr að skólaþróun, stjórnun, rekstri og stjórnsýslu
  • Reynsla af starfi á leikskólastigi
  • Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar og/eða reynsla að stjórnun æskileg
  • Íslenskukunnátta á stigi C1 skv. evrópska tungumálarammanum
  • Góð samskiptahæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Góð tölvukunnátta
Hlunnindi í starfi

Starfsfólk í skólum Garðabæjar hefur möguleika á að sækja um styrki í Þróunarsjóði leik- og grunnskóla Garðabæjar og er þeim ætlað að stuðla að nýbreytni og framþróun í starfi. Einnig er til staðar sérverkefnasjóður sem styður enn frekar við skólastarfið.  

  • Á leikskólastigi Urriðaholtsskóla er full vinnustytting eða 4 klst. á viku. Hluta styttingar er safnað í vetrarfrí, páska- og jólafrí. Sérstök skráning barna er í vetrar- og jólafríi en lokað er í dymbilviku, sem og 2. janúar vegna styttingar starfsfólks.
  • Skipulagsdagar eru fimm á skólaári og eru skipulagsdagar í leik- og grunnskólum bæjarins samræmdir.
  • Leikskólinn er opinn frá kl 07:30-16:30 mánudaga til fimmtudaga en frá 07:30-16:00 á föstudögum.
  • Forgangur á leikskóla fyrir börn starfsmanna með lögheimili í Garðabæ og í 75% starfshlutfalli eða meira
  • 40% afsláttur á leikskólagjöldum fyrir starfsmenn með lögheimili í Garðabæ
  • 0,25 % stöðugildi vegna snemmtækrar íhlutunar inn á hverri deild
  • 0,5% stöðugildi inn á yngstu deildir leikskóla ef fjöldi barna á aldrinum 1-2 ára eru fleiri en tíu á deild
  • Hægt er að sækja um námstengda styrki til að efla faglegt leikskólastarf
  • Heilsuræktarstyrkur fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði í starfi
  • Bókasafnskort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
  • Menningarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
  • Sundlaugarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
  • Árshátíð er starfsmönnum að kostnaðarlausu
  • Íslenskunámskeið fyrir erlenda starfsmenn
Utworzono ofertę pracy28. April 2025
Termin nadsyłania podań12. May 2025
Znajomość języków
islandzkiislandzki
Wymagane
Ojczysty
Lokalizacja
Urriðaholtsstræti 2-4, 210 Garðabær
Rodzaj pracy
Kompetencje
PathCreated with Sketch.InicjatywaPathCreated with Sketch.Samodzielność w pracy
Zawody
Oznaczenia