

Yfirlæknir ofnæmis- og ónæmislækninga
Starf yfirlæknis ofnæmis- og ónæmislækninga innan Blóðbanka- og ónæmisfræðiþjónustu á Landspítala er laust til umsóknar.
Leitað er eftir metnaðarfullum og framfarasinnuðum sérfræðilækni sem er reiðubúinn að leiða og efla ofnæmis- og ónæmislækningar Landspítala ásamt því að tryggja árangursríkt mennta- og vísindastarf. Viðkomandi þarf að búa yfir afburða samskiptahæfni og hafa hæfni til að takast á við breytingar. Starfið er unnið í nánu samstarfi við yfirlækni Blóðbanka- og ónæmisfræðiþjónustu, aðra yfirlækna og deildarstjóra kjarna, forstöðumann kjarna, forstöðumann fræðasviðs, framkvæmdastjóra og annað starfsfólk.
Innan Blóðbanka- og ónæmisfræðiþjónustu starfar öflugur hópur samhents teymis reyndra starfsmanna sem vinna í nánu samstarfi við aðrar deildir spítalans. Næsti yfirmaður er forstöðumaður klínískrar rannsókna- og blóðbankaþjónustu.
Starfshlutfall er 100% og veitist starfið frá 1. janúar 2026 eða eftir nánara samkomulagi. Gerð er krafa um helgun í starfi yfirlæknis.
- Ber faglega læknisfræðilega ábyrgð á uppbyggingu, skipulagi og þróun ofnæmis- og ónæmislækninga við Landspítala, þ.m.t. kennslumál og vísindastarf
- Ber fjárhagslega og starfsmannaábyrgð innan einingar í samráði við deildarstjóra og yfirlækna Blóðbanka- og ónæmisfræðiþjónustu
- Ábyrgð á stefnumótun og áætlanagerð sérgreinar með það að markmiði að hún sé hagkvæm og innan rekstrarviðmiða hvers árs
- Framfylgir stefnumótun og áherslum framkvæmdastjórnar
- Þróar þjónustu innan ábyrgðarsviðs með áherslu á samhæfingu við aðra starfsemi
- Tryggir að öryggis-, gæða- og umbótastarfi sé framfylgt
- Íslenskt sérfræðileyfi í ofnæmis- og/ eða ónæmislækningum eða skyldum greinum
- Leiðtogahæfileikar og geta til að leiða umbótastarf og breytingar
- Góð reynsla af vinnu við ofnæmis- og ónæmislækningar og samhliða góð innsýn inn í þessar sérgreinar læknisfræðinnar
- Færni í stjórnunarhlutverki, þ.e. fagleg ábyrgð, starfsmannaábyrgð og fjárhagsleg ábyrgð
- Reynsla af kennslu og vísindastörfum og sýn til framtíðar á þeim sviðum
- Frumkvæði og metnaður til að ná árangri
- Jákvætt lífsviðhorf, lausnarmiðuð nálgun og framúrskarandi samskiptahæfni
- Frumkvæði, drifkraftur og stefnumarkandi hugsun
- Góð íslenskukunnátta
Icelandic









































