

Tónmenntakennari - Öldutúnsskóli
Öldutúnsskóli auglýsir eftir tónmenntakennara.
Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2025.
Í Öldutúnsskóla eru um 630 nemendur í 1. - 10. bekk. Í skólanum er lögð áhersla á skapandi og gefandi námsumhverfi þar sem allir aðilar leitast við að gera námið í senn áhugavert og skemmtilegt. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda og fjölbreytta kennsluhætti. Rík áherslu er lögð á teymisvinnu.
Einkunnarorð skólans eru virðing, virkni og vellíðan og grundvallast starf skólans af þeim gildum. Skólinn vinnur samkvæmt hugmyndafræði SMT um jákvæða skólafærni og samkvæmt hugmyndafræði Olweusar gegn einelti og andfélagslegri hegðun.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Annast almenna tónmenntakennslu á öllum stigum í samvinnu við skólastjórnendur, aðra kennara og foreldra
- Vinna að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
- Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
- Vinna samkvæmt stefnu skólans
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf skal fylgja umsókn)
- Áhugi og/eða reynsla af tónmenntakennslu.
- Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni.
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
- Stundvísi og samviskusemi
- Mjög góð íslenskukunnátta
Nánari upplýsingar veita Margrét Sverrisdóttir, skólastjóri, í síma: 664-5894, [email protected] og Áslaug Hreiðarsdóttir, aðstoðarskólastjóri, [email protected]
Umsóknarfrestur er til og með 28. apríl nk.
Greinargóð ferilsskrá fylgi umsókn.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.













































