Kársnesskóli
Kársnesskóli
Kársnesskóli

Náttúrufræðikennari á unglingastigi óskast

Kársnesskóli óskar eftir drífandi, kraftmiklum kennara á unglingastig til að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi

Laus er til umsóknar náttúrufræðikennarastaða á elsta stigi skólans. Kársnesskóli er framsækinn grunnskóli í vesturbæ Kópavogs sem byggður er á gömlum gildum en er nú nýr skóli með nemendum í 5. - 10.bekk. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda, fjölbreytta kennsluhætti og að allir nemendur nái árangri. Í skólanum eru um 400 nemendur. Unnið er samkvæmt uppeldisstefnunni Uppeldi til ábyrgðar. Í Kársnesskóla eru allir nemendur í 5.-10.bekk með spjaldtölvur og áhersla er á gott samstarf í góðum teymum.

Gildi skólans eru virðing, þekking, ábyrgð og ánægja.

Ráðningartími og starfshlutfall Um er að ræða 100% framtíðarstarf

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Náttúrufræðikennsla á unglingastigi ásamt teymisvinnu og kennslu í þematengdum verkefnum
  • Taka þátt í uppbyggingu og mótun skólastarfsins
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagfólk
  • Vinna samkvæmt stefnu skólans
  • Vinna að því að skapa góðan skólabrag

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leyfisbréf til kennslu
  • Reynsla af kennslu í grunnskóla er æskileg
  • Áhugi á að vinna í góðu teymi
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Einlægur áhugi á að vinna með börnum og unglingum
  • Þolinmæði og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Stundvísi og áreiðanleiki er skilyrði

Frekari upplýsingar

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ

Upplýsingar gefa skólastjóri, Björg Baldursdóttir og Sigrún Valdimarsdóttir aðstoðarskólastjóri í síma 441-4600

Öll, óháð kyni eru hvött til að sækja um starfið.

Advertisement published16. April 2025
Application deadline4. May 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Kópavogsbraut 47, 200 Kópavogur
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.TeacherPathCreated with Sketch.TeachingPathCreated with Sketch.PunctualPathCreated with Sketch.Patience
Professions
Job Tags