
Garðabær
Garðabær leggur áherslu á að veita íbúum bæjarins framúrskarandi þjónustu og sækist eftir að ráða til starfa metnaðarfulla og færa einstaklinga sem eru jákvæðir, faglegir og áreiðanlegir.
Starfsemi bæjarins býður upp á mörg skapandi, fjölbreytt og skemmtileg störf í lifandi umhverfi.

Sjálandsskóli óskar eftir umsjónarkennara
Í Sjálandsskóla er laust til umsóknar starf umsjónarkennara fyrir skólaárið 2025-2026
Sjálandsskóli er heildstæður grunnskóli fyrir nemendur í 1.-10. bekk og er staðsettur í Garðabæ. Í skólanum eru 270 nemendur og starfsmenn eru um 70. Í Sjálandsskóla ríkir góður starfsandi þar sem allir starfsmenn vinna saman að því að byggja upp fjölbreytt og skapandi skólastarf. Aðstaða starfsfólks og nemenda er til fyrirmyndar. Leitað er eftir einstaklingi sem er tilbúinn að starfa að sveigjanlegu skólastarfi í teymisvinnu og samkvæmt skólastefnu Sjálandsskóla.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Skipulag náms og kennslu
- Sinnir kennslu og hefur umsjón með nemendum
- Vinnur að skólaþróun með stjórnendum og samstarfsfólki
- Stuðlar að velferð nemenda og samstarfi við foreldra og annað fagfólk
- Þátttaka í teymisvinnu
- Foreldrasamskipti og samvinna heimilis og skóli
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf fylgi umsókn)*
- Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði grunnskóla
- Lipurð og færni í mannlegum samskiptum ásamt metnaði í starfi
- Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Faglegur metnaður
- Áhugi á skólaþróun
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði á stigi C-1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
- Góð tölvukunnátta
- Reynsla af starfi í grunnskóla og/eða starfi með börnum er æskileg
Advertisement published15. April 2025
Application deadline24. April 2025
Language skills

Required
Location
Garðatorg 7, 210 Garðabær
Type of work
Skills
ProactiveTeacherHuman relationsIndependencePlanning
Professions
Job Tags
Other jobs (4)
Similar jobs (12)

Starf í leikskólanum í Marbakka
Marbakki

Deildarstjóri óskast til starfa í leikskólann Hamra.
Leikskólinn Hamrar

Kennarar í Auðarskóla skólaárið 2025-2026
Auðarskóli

Umsjónarkennari á miðstig skólaárið 2025 - 2026
Selásskóli

Á Flúðum vantar leikskólakennara til starfa
Hrunamannahreppur

Forstöðumaður bókasafns / skjalavarsla
Hrunamannahreppur

Leikskólakennari
Regnboginn

Leikskólakennari óskast í leikskólann Kirkjuból
Leikskólinn Kirkjuból

Ert þú í leit að skemmtilegu starfi?
Efstihjalli

Tónlistarkennari/kórstjóri á Hólmavík
Sveitarfélagið Strandabyggð

Leikskólakennari/leiðbeinandi óskast til starfa
Leikskólinn Blásalir

Sérkennsla í Blásölum
Leikskólinn Blásalir