Isavia / Keflavíkurflugvöllur
Isavia / Keflavíkurflugvöllur
Isavia / Keflavíkurflugvöllur

Tæknimaður í raftækniþjónustu

Við óskum eftir að ráða traustan og öflugan tæknimann í viðhald tæknibúnaðar á Keflavíkurflugvelli. Viðkomandi mun starfa í hópi metnaðarfullra tæknimanna við viðhald á fjölbreyttum tæknibúnaði í mjög lifandi umhverfi. Í starfinu felast almenn rafvirkjastörf (lágspennu) og framkvæmd viðhalds samkvæmt viðhaldsáætlunum eignastjóra. Tæknimennirnir hafa það hlutverk að styðja við öruggan og skilvirkan rekstur á Keflavíkurflugvelli með kerfisbundnu viðhaldi. Viðkomandi býðst að ganga bakvaktir þegar reynsla og þekking hefur hlotist af bilanagreiningum, viðhaldi og viðgerðum.Helstu verkefni:

  • Almenn rafvirkjastörf og viðhald eigna
  • Eftirlit með eignum og bilanagreining
  • Styður við uppsetningu eigna
  • Skráning viðhaldssögu
  • Önnur tilfallandi verkefni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Sveinspróf í rafiðngreinum
  • Góð hæfni í samskiptum
  • Frumkvæði, þjónustulund og skipulögð vinnubrögð
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Góð íslensku- og enskukunnátta

Starfsstöð er á Keflavíkurflugvelli.

Isavia er vinnustaður þar sem við sýnum hvert öðru virðingu og erum heiðarleg gagnvart sjálfum okkur og öðrum. Við gætum þess að viðhalda gleðinni, erum hugrökk, uppbyggileg og tökum ábyrgð á eigin frammistöðu. Saman náum við árangri.

Við bjóðum upp á hollan og góðan mat í mötuneytum okkar, farsímaáskrift og allt starfsfólk hefur aðgang að heilsu- og líkamsræktarstöðvum sér að kostnaðarlausu.

Umsóknarfrestur er til og með 2.október 2025.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Sveinn Óskarsson, í gegnum netfang [email protected] eða í síma 837-6265.

Umsóknum skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi um hæfni viðkomandi í starfið.

Við hvetjum áhugasama aðila, án tillits til kyns og uppruna, til að sækja um.

Advertisement published18. September 2025
Application deadline2. October 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Keflavíkurflugvöllur, 235 Reykjanesbær
Type of work
Work environment
Professions
Job Tags