

Verkefnastjóri rafmagns / rafvirki
Vegna aukinna verkefna leitum við að verkefnastjóra rafmagns til að ganga til liðs við þjónustuteymið okkar. Við leitum eftir öflugum og þjónustuliprum einstaklingi sem er til í að takast á við spennandi og skemmtileg verkefni. Viðkomandi verður að vera ábyrgur, stundvís, hafa framúrskarandi samskiptahæfileika ásamt því að búa yfir hæfni til að starfa sjálfstætt við uppsetningar, bilanaleit og viðgerðir. Góð laun í boði fyrir réttan aðila.
Rými ehf. er fjölskyldufyrirtæki sem hefur verið starfandi frá árinu 1936 en við höfum verið framúrskarandi fyrirtæki á lista Creditinfo síðastliðin 7 ár. Hjá fyrirtækinu starfar samhentur hópur starfsfólks með áratuga reynslu af ráðgjöf, hönnun, þjónustu og uppsetningum á sviðum verslunarinnréttinga, lagerbúnaðar, skjalageymslutækni, lyftum, sjálfopnandi hurðum og ýmsum búnaði fyrir iðnað, verkstæði, sveitarfélög og opinberar stofnanir.
- Umsjón með þjónusta á tæknibúnaði í samvinnu við næsta yfirmann
- Samskipti við viðskiptavini innri sem ytri
- Mikil hæfni í bilanaleit og viðgerðum á rafbúnaði
- Úttektir á tæknibúnaði
- Tilfallandi verkefni
- Sveinspróf í rafvirkjun
- Sjálfstæð vinnubrögð, útsjónarsemi og fagmennska
- Jákvætt og lausnamiðað hugarfar
- Mikil hæfni í mannlegum samskiptum
- Bílpróf
- Góð íslenskukunnátta
- Farsímaáskrift
- Vinnuföt
- Vinnubíll












