Nortek
Nortek

Uppsetningarmaður vegriða og öryggisgirðinga

Nortek ehf. óskar eftir öflugum og áreiðanlegum starfsmanni í hópinn okkar. Staðan felst í uppsetningu og viðhaldi vegriða, öryggisgirðinga og annarra umferðaröryggislausna um allt land.

Nortek ehf. er leiðandi fyrirtæki á sviði öryggislausna á Íslandi. Við sérhæfum okkur í meðal annars í uppsetningu og viðhaldi vegriða, öryggisgirðinga og annarra lausna sem stuðla að auknu öryggi á vegum landsins. Hjá okkur starfar samhentur hópur fagfólks sem leggur áherslu á gæði, öryggi og góðan starfsanda – og við erum stolt af því að taka þátt í að gera umhverfi okkar öruggara fyrir alla vegfarendur.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Uppsetning og viðhald vegriða samkvæmt verklýsingum og öryggisstöðlum
  • Undirbúningur vinnusvæða og samvinna við verktaka og verkkaupa
  • Notkun tækja og tól til vinnu við stál- og steypueiningar
  • Tryggja öryggi á vinnusvæði og fylgja vinnuverndarkröfum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af verklegum framkvæmdum, sérstaklega í vegagerð, er kostur
  • Meirapróf (ökuskírteini C eða CE) er kostur
  • Vinnuvélaréttindi eru mikill kostur
  • Góð líkamleg heilsa og geta til að vinna utandyra við breytilegar aðstæður
  • Jákvætt viðhorf, ábyrgðartilfinning og færni í teymisvinnu
  • Hreint sakavottorð
Fríðindi í starfi
  • Fjölbreytt og krefjandi verkefni hjá traustu fyrirtæki
  • Faglegt og samheldið starfsumhverfi
  • Góðan stuðning og þjálfun í starfi
  • Samkeppnishæf laun og kjör samkvæmt reynslu og hæfni
Advertisement published19. September 2025
Application deadline27. September 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Fossaleynir 16, 112 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Building skillsPathCreated with Sketch.Driver's license CPathCreated with Sketch.Driver's license C1PathCreated with Sketch.Heavy machinery license
Professions
Job Tags