Stéttafélagið ehf.
Stéttafélagið ehf.
Stéttafélagið ehf.

Rafvirki

Stéttafélagið ehf. óskar eftir rafvirkja til starfa í byggingardeild fyrirtækisins.

Um er að ræða stöðu þar sem meginhluti starfsins snýr að fjölbreyttri rafvirkjun. En hluti starfsins felur í sér einnig tilfallandi störf í húsasmíði.

Skilyrði er að umsækjandi sé annað hvort með sveinspróf, eða sé í námi til sveinsprófs.

Fyrirtækið starfar á fjölbreyttu sviði mannvirkjagerðar. Helstu viðfangsefnin eru húsbyggingar, jarðvinna og veitulagnir. Dæmi um innviðagerð eru skólabyggingar, veitulagnir í jörðu, undirstöður undir möstur háspennulína og dæluhús fyrir vatns- og hitaveitu.

Byggingadeild félagsins tekur að sér fjölbreytt verkefni. Stór hluti verkefnanna felst í gerð nýbygginga frá grunni og að fullkláruðu húsi.

Stéttafélagið starfar á útboðsmarkaði og framleiðir einnig íbúðir og atvinnuhúsnæði inn á almennan markað.

Dæmi um verkefni unnin fyrir opinbera verkkaupa eru nýsmíði skólabygginga, utanhússklæðningar, gluggaísetningar, stoðveggir svo dæmi séu tekin.

Einnig eru verkefnin tengd ýmis konar trésmíði - s.s. pallasmíði, skjólgirðingar, gerð leiktækja/búnaðar á skólalóðum osfrv..

Verkefnastaða er mjög góð og næg vinna í boði.

Verkefni okkar eru á höfuðborgarsvæðinu og nágrenni.

Nánari upplýsingar um starfið fæst með því að sækja um starfið og hefja samskipti hér á vefnum.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Sveinspróf í rafvirkjun, eða í námi til sveinsprófs
  • Reynsla í húsasmíði er kostur
  • Íslenskukunnátta er skilyrði
Advertisement published18. September 2025
Application deadlineNo deadline
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Breiðhella 12, 221 Hafnarfjörður
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.HousebuildingPathCreated with Sketch.CarpenterPathCreated with Sketch.Journeyman license
Professions
Job Tags