

Áhættustjóri
Við hjá Isavia erum að leita að öflugum og framsýnum áhættustjóra sem hefur metnað til að leiða þróun og innleiðingu heildstæðrar áhættustýringu fyrirtækisins. Starfið felur í sér að styðja stjórnendur og starfsfólk við að greina, meta og stýra áhættu með það að markmiði að tryggja öruggt og skilvirkt rekstrarumhverfi. Áhættustjóri vinnur í nánu samstarfi við stjórnendur og starfsfólk og þarf viðkomandi að vera ábyrgur, drífandi og hafa ástríðu fyrir áhættustýringu.
Þetta er spennandi tækifæri fyrir einstakling sem vill hafa raunveruleg áhrif á þróun og öryggi íslensks flugvallareksturs, vinna með frábæru teymi stjórnenda og taka þátt í að leiða flugvallarsamfélag sem eykur lífsgæði og velsæld á Íslandi.
Helstu verkefni:
- Leiða innleiðingu heildstæðrar áhættustýringar (ERM) í samstarfi við stjórnendur og lykileiningar
- Tryggja að áhættustýring sé samþætt við stefnumótun, fjárhagsáætlanir og daglegan rekstur fyrirtækisins
- Þróa verklag og menningu innan félagsins sem styður við ábyrga áhættutöku og skýra ábyrgð
- Skilgreina og viðhalda áhættuvilja og áhættuþoli í samstarfi við stjórnendur og stjórn
- Árangursgreiningar og eftirfylgni úrbóta
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólanám sem nýtist í starfi, t.d. verkfræði, viðskiptafræði, lögfræði eða fjármálum
- Framhaldsmenntun í áhættustjórnun eða sambærilegu er kostur
- Reynsla af áhættustjórnun, áhættugreiningum og innleiðingu áhættustefnu
- Sterk skipulags- og greiningarhæfni og úthald og hæfni til að leiða umbótaverkefni
- Frábær samskipta- og samstarfshæfni, með getu til að miðla flóknum upplýsingum á skiljanlegan hátt
- Frumkvæði, metnaður og árangursmiðuð hugsun
- Góð íslensku- og enskukunnátta, í ræðu og riti
Starfsstöð er í Hafnarfirði.
Isavia er vinnustaður þar sem við sýnum hvert öðru virðingu og erum heiðarleg gagnvart sjálfum okkur og öðrum. Við gætum þess að viðhalda gleðinni, erum hugrökk, uppbyggileg og tökum ábyrgð á eigin frammistöðu. Saman náum við árangri.
Við bjóðum upp á hollan og góðan mat í mötuneytum okkar, farsímaáskrift og allt starfsfólk hefur aðgang að heilsu- og líkamsræktarstöðvum sér að kostnaðarlausu.
Umsóknarfrestur er til og með 5. október 2025.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Ingibjörg Arnardóttir, í gegnum netfang [email protected].
Umsóknum skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi um hæfni viðkomandi í starfið.
Við hvetjum áhugasama aðila, án tillits til kyns og uppruna, til að sækja um.













