

Bílastæðaþjónusta Keflavíkurflugvallar
Við leitum að þjónustulunduðum og glaðlyndum einstaklingi sem hefur góða samskiptahæfileika, lipra og þægilega framkomu og getu til að vinna undir álagi. Helstu verkefni eru að aðstoða viðskiptavini á bílastæðum, tilfærsla á ökutækjum, almennt eftirlit á útisvæði, símsvörun og að svara tölvupóstum í samráði við vaktstjóra.
Starfið krefst reglulegrar samskipta við viðskiptavini, Við leggjum sérstaka áherslu á hæfni til skýrra og faglegra samskipta, bæði í rituðu og töluðu máli.
Um er að ræða framtíðarstarf og unnið verður á 5-5-4 vaktakerfi.
Hæfniskröfur
-
Aldurstakmark 25 ár
-
Gild ökuréttindi á beinskipta bíla
-
Fimm ára reynsla af akstri
-
Meirapróf og vinnuvélaréttindi er kostur
-
Almenn tölvukunnátta og færni í ritun tölvupósta
-
Þjónustulipurð, jákvæðni og góð framkoma
-
Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði í starfi
-
Góð kunnátta í íslensku og ensku
Við bjóðum upp á hollan og góðan mat í mötuneytum okkar og allt starfsfólk hefur aðgang að heilsu- og líkamsræktarstöðvum sér að kostnaðarlausu.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Freyja Másdóttir hópstjóri bílastæðaþjónustu í gegnum netfang [email protected]
Við hvetjum áhugasama aðila, án tillits til kyns og uppruna, til að sækja um.













