

Stuðningsfulltrúi óskast í sumarstarf með börnum og ungmennu
SkaHm er heildstæð þjónusta fyrir börn með tilfinninga- og hegðunarvanda sem og fjölskyldur þeirra. Óskað er eftir stuðningsfulltrúa á Dvalarsviði í SkaHm til að skapa skemmtilegar minningar í sumar með hressum krökkum.
Þjónusta SkaHm skiptist í tvö svið, Dvalarsvið og Ráðgjafarsvið.
Undir Dvalarsviði er Styrkur og Dvöl.
Styrkur – Þar sem markmiðið eru að styðja barnið við að efla félagsfærni, sjálfstæði og virkni í daglegum athöfnum. Stuðningurinn fer annars vegar fram í einstaklingsstarfi og hins vegar í hópastarfi.
Dvöl – Er sólarhringsþjónusta þar sem markmiðið er að veita börnum og foreldrum tímabundna hvíld með það að leiðarljósi að draga úr streituvaldandi aðstæðum sem hafa skapast inn á heimili. Auk þess felst starfsemin í því að styðja barnið í athöfnum daglegs lífs.
Laus staða er á Dvalarsviði. Lokað er vegna sumarleyfa frá 6. júlí - 1. ágúst. Starfshlutfall samkomulag.
- Mæta þörfum barns á heildstæðan og einstaklingsbundinn hátt.
- Styðja barnið við þær daglegu athafnir sem það þarf.
- Fylgja eftir einstaklingsáætlun barnsins og verklagsreglum.
- Aðstoða einstaklinga varðandi félagslega og heilsufarslega þætti.
- Önnur tilfallandi verkefni sem snúa að skammtímadvölinni.
- Góð almenn menntun.
- Bílpróf.
- Þekking og reynsla af starfi með börnum og/eða ungmennum æskileg.
- Jákvætt viðmót og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
- Frumkvæði, jákvæðni, sjálfstæði í vinnubrögðum og skipulagshæfni.
- Viðkomandi þarf að vera 20 ára eða eldri.
- Hreint sakavottorð samkvæmt reglum Reykjavíkurborgar.
- Góð íslensku kunnátta á stigi B2 (í samræmi við samevrópskan tungumálaramma).





















