Do you want to translate non-english job information to English?
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Spennandi sumarstarf fyrir stuðningsfulltrúa

Íbúðakjarninn að Árlandi 10 óskar eftir að ráða hæfileikaríkt og drífandi fólk í sumarafleysingar. Um er að ræða skemmtilegt, fjölbreytt og gefandi starf á líflegum vinnustað þar sem lögð er áhersla á jákvæðni, samvinnu og vinsemd. Unnið er á fjölbreyttum vöktum, en starfshlutfall er samkomulagsatriði.

Helstu verkefni og ábyrgð

Í íbúðakjarnanum búa sex einstaklingar með þroskahömlun og skyldar raskanir, en þjónustan miðar að því að auka sjálfstæði, lífsgæði og hamingju íbúanna. Unnið er eftir hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf en hlutverk stuðningsfulltrúa er að styðja við og aðstoða íbúa við allar athafnir daglegs lífs. Í því felst að gera íbúum kleift að búa á eigin heimili, stunda vinnu og njóta menningar og félagslífs.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Góð almenn menntun
  • Viðkomandi þarf að vera 20 ára eða eldri
  • Bílpróf
  • Íslenskukunnátta B1 skilyrði
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar
  • Reynsla af starfi með fötluðu fólki er æskileg
  • Jákvæðni og góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði, stundvísi, áreiðanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Hæfni til að takast á við krefjandi vinnuumhverfi undir handleiðslu fagfólks
Advertisement published8. April 2025
Application deadline30. April 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
Location
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags
Would you like some cookies? Alfred uses cookies to analyze traffic on the web and improve your experience. See more.