

Sérfræðingur í tæknimálum ökutækja
Samgöngustofa leitar að öflugum einstaklingi í stöðu sérfræðings í deild tæknimála og innviða á sviði umferðar hjá stofnuninni. Helstu verkefni deildarinnar eru stjórnsýsla og eftirlit með upphafsviðurkenningum, breytingum og skoðunum ökutækja, afmarkað eftirlit með veghöldurum, verklagsreglugerð og veiting leiðbeininga um tæknimál ökutækja. Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á umferðaröryggi, ökutækjum, gæðamálum, stöðugum umbótum og er góður liðsmaður.
· Úrvinnsla bíltæknilegra málefna og verklagsreglugerð varðandi skoðun og skráningu.
· Úrvinnsla frávika sem koma upp varðandi skoðanir, skráningu og viðurkenningar.
· Samskipti við hagsmunaaðila og upplýsingamiðlun.
· Öflun og rýni gagna og upplýsinga, þátttaka í tölfræðilegri úrvinnslu.
· Þátttaka í þróun og uppbyggingu verkefna, ferla og stafrænnar vegferðar.
· Fagmenntun eða háskólamenntun sem nýtist í starfi.
· Þekking á ökutækjum.
· Reynsla af sambærilegum störfum er kostur.
· Þekking og reynsla á gæðastjórnunarkerfum er kostur.
· Góð hæfni í samskiptum, jákvætt og lausnamiðað viðhorf.
· Skipulagshæfni og sterk ferla- og umbótahugsun.
· Sjálfstæði, frumkvæði og metnaður í starfi.
· Góð færni í íslensku og ensku í rituðu og mæltu máli.
· Almenn tölvukunnátta.
· Almenn ökuréttindi.
Þetta er tækifæri til að starfa í krefjandi og sérhæfðu umhverfi þar sem faglegar áskoranir og fjölbreytt verkefni eru í forgrunni.













