Norconsult Ísland ehf.
Norconsult Ísland ehf.
Norconsult Ísland ehf.

Byggingarverk- eða tæknifræðingur á framkvæmdasvið

Norconsult á Íslandi leitar að metnaðarfullum byggingarverk- eða tæknifræðingi á framkvæmdasvið. Starfið er fjölbreytt og krefjandi; þú tekur þátt í ráðgjöf og hönnun, framkvæmdareftirliti, byggingar- og verkefnastjórnun.

Norconsult á Íslandi er hluti af alþjóðlegu ráðgjafafyrirtæki með þúsundir sérfræðinga víða um heim þar sem verkefnin ná frá skipulagi innviða til verkfræði og arkitektúrs. Á Íslandi starfa um 85 manns, þar af um 26 í verk- og tæknifræði og 60 í arkitektúr í sjálfstæðum einingum. Við erum ört vaxandi stofa með sterkan starfsanda og mikla þekkingu. Langar þig að taka þátt?

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Þáttaka í útboðum
  • Landmælingar
  • Eftirlit með framkvæmdum
  • Ráðgjöf í tengslum við hönnun mannvirkja
  • Samskipti við verktaka, hönnuði mannvirkja og aðra hagaðila
  • Framvindueftirlit, verkfundir og úttektir

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun í byggingarfræði, byggingarverk- eða tæknifræði
  • Reynsla af verklegum framkvæmdun er kostur
  • Reynsla við framkvæmdareftirlit er kostur
  • Réttindi byggingarstjóra er kostur
  • Góð þekking á íslenskum byggingarmarkaði er kostur
  • Góðir samskiptahæfileikar, drifkraftur og metnaður

Fríðindi í starfi

Hreyfistyrkur, samgöngustyrkur, símastyrkur ásamt símaáskrift og heimanettengingu, svo eitthvað sé nefnt. Árleg tækifæri til hlutabréfakaupa á sérkjörum.

Sveigjanlegur vinnutími í vinalegu umhverfi og í hjarta Kópavogs.

Nánari upplýsingar um vinnustaðinn www.norconsult.is

Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.

Nánari upplýsingar um starfið veitir: Þorgeir Hólm Ólafsson, [email protected]

Advertisement published10. October 2025
Application deadline24. October 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Hlíðasmári 4, 201 Kópavogur
Type of work
Professions
Job Tags