Jarðboranir
Jarðboranir
Jarðboranir

Starfsmaður í steypuþjónustu

Jarðboranir leita að starfsmanni í steypuþjónustu við borframkvæmdir. Um er að ræða krefjandi og spennandi starf á framkvæmdasvæðum við djúpboranir eftir jarðhita.

Helstu verkefni steypuþjónustu er að sinna steypingum í borholur, s.s. fóðringarsteypingar og lekasteypingar. Viðhald steyputækja og tengdum búnaði auk flutnings tækja og búnaðar. Við leitum að traustum, metnaðarfullum aðila sem getur starfað undir álagi á borstað. Starfsstöð steypuþjónustu er á Þjónustustöð Jarðborana í Hafnarfirði. Viðkomandi þarf að geta staðið bakvaktir.

Menntunar- og hæfniskröfur

·         Reynsla af viðhaldi stórra vinnuvéla

·         Sveinspróf í bifvélavirkjun eða vélvirkjun æskilegt

·         Vinnuvélaréttindi æskileg

·         Góð samskiptahæfni og hæfni til að vinna í krefjandi starfsumhverfi

·         Sjálfstæð, traust og vönduð vinnubrögð

Advertisement published8. October 2025
Application deadline26. October 2025
Language skills
No specific language requirements
Type of work
Professions
Job Tags