Þjóðskjalasafn Íslands
Þjóðskjalasafn Íslands
Þjóðskjalasafn Íslands

Rekstrarstjóri upplýsingatækni

Þjóðskjalasafn Íslands auglýsir laust til umsóknar nýtt starf rekstrarstjóra upplýsingatækni. Leitað er að drífandi einstaklingi í spennandi starf hjá öflugri menningar- og stjórnsýslustofnun sem varðveitir heimildir um sögu þjóðarinnar og leiðir skjalavörslu og skjalastjórn hins opinbera.

Um 50 manns starfa hjá Þjóðskjalasafni. Um þessar mundir standa yfir miklar breytingar í starfseminni og því um spennandi tækifæri að ræða fyrir kraftmikinn aðila. Nánari upplýsingar um starfsemina má finna á vefnum skjalasafn.is.

Rekstrarstjóri upplýsingatækni er hluti af öflugu teymi á skrifstofu rekstrar. Undir skrifstofuna falla fjármál, mannauðsmál, gæðamál, upplýsingatækni, upplýsingaöryggi, skjalamál, húsnæðismál og öryggismál.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Rekstur á miðlurum og gagnagrunnum (kerfisstjórn)

  • Rekstur útstöðva og annars notendabúnaðar

  • Rekstur hugbúnaðarkerfa í samstarfi við fageiningar og birgja

  • Eftirfylgni með uppfærslum á stýrikerfi og hugbúnaði frá þriðja aðila

  • Uppsetning á vélbúnaði og hugbúnaði

  • Tæknilegur stuðningur, notendaþjónusta og fræðsla fyrir starfsfólk

  • Samskipti við birgja í upplýsingatækni

  • Verkefnastýring verkefna í upplýsingatækni

  • Vinna við stöðugar úrbætur á sviði upplýsingaöryggis

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af rekstri kerfa til a.m.k. þriggja ára skilyrði

  • Menntun á sviði tölvunarfræði, verkfræði, tæknifræði eða kerfisstjórnun mikill kostur

  • Þekking á Windows og Windows Server stýrikerfum skilyrði

  • Þekking á RedHat og/eða Debian ættuðum Linux stýrikerfum æskileg

  • Þekking á gagnagrunnum (Microsoft SQL Server, Oracle, MySQL og/eða PostgreSQL) og rekstri þeirra er mikill kostur

  • Þekking á rekstri netkerfa og þráðlauss aðgangsbúnaðar og þekking á uppbyggingu víð- og staðarnets er skilyrði

  • Reynsla af öryggisvöktun (SIEM) og samstarfi við öryggisvöktunarsetur (SOC) er æskileg

  • Reynsla af notkun á umsýsluhugbúnaði fyrir útstöðvar og miðlara er skilyrði

  • Reynsla af stöðugum úrbótum á sviði upplýsingaöryggis skilyrði

  • Reynsla af þjónustustörfum er mikill kostur

  • Skipulagshæfni, frumkvæði í starfi og sjálfstæði í vinnubrögðum

  • Mjög góð færni í mannlegum samskiptum

  • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti

Advertisement published8. October 2025
Application deadline20. October 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Expert
Location
Laugavegur 162, 105 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Computer scientistPathCreated with Sketch.TechnologistPathCreated with Sketch.Project managementPathCreated with Sketch.IT project managementPathCreated with Sketch.Engineer
Work environment
Professions
Job Tags