

Sérfræðingur í áhættustýringu
Viltu taka þátt í að móta og þróa heildstæða áhættustýringu í líflegu og krefjandi umhverfi? Ef svo er, þá leitum við hjá Isavia/KEF að umbótamiðuðum einstaklingi í stöðu sérfræðings í áhættustýringu. Viðkomandi mun taka virkan þátt í innleiðingu heildstæðrar áhættustýringar og áhættustefnu og stuðla þannig að sterkri áhættumenningu innan félagsins. Við óskum eftir að ráða einstakling sem er drífandi, getur unnið sjálfstætt og hefur brennandi áhuga á að tryggja öruggt og skilvirkt rekstrarumhverfi á Keflavíkurflugvelli.
Helstu verkefni:
- Taka virkan þátt í innleiðingu og reglubundnu viðhaldi heildstæðrar áhættustýringar og áhættustefnu félagsins
- Framkvæma áhættugreiningar og áhættumöt, ásamt því að halda utan um og uppfæra áhættuskrá
- Innleiða áhættutengda ferla og verklagsreglur
- Veita fræðslu og miðla upplýsingum um áhættutengd málefni
- Eftirfylgni með athugasemdum og ábendingum innri endurskoðenda
- Taka þátt í störfum áhættunefndar og öðrum vinnuhópum tengdum áhættustýringu
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólanám sem nýtist í starfi, t.d. viðskiptafræði, lögfræði, fjármálum eða verkfræði
- Reynsla af áhættustýringu, innra eftirliti, innri endurskoðun eða tengdum sviðum er kostur
- Þekking á ferlum og aðferðafræði áhættustýringar kostur
- Reynsla af þátttöku í umbótaverkefnum og innleiðingu breytinga
- Skipulags- og greiningarhæfni og umbótahugsun
- Frábær samskipta- og samstarfshæfni og geta til að miðla flóknum upplýsingum á einfaldan og aðgengilegan hátt
- Góð færni í rituðu og mæltu máli á íslensku og ensku
Starfsstöð er í Hafnarfirði.
Isavia er vinnustaður þar sem við sýnum hvert öðru virðingu og erum heiðarleg gagnvart sjálfum okkur og öðrum. Við gætum þess að viðhalda gleðinni, erum hugrökk, uppbyggileg og tökum ábyrgð á eigin frammistöðu. Saman náum við árangri.
Við bjóðum upp á hollan og góðan mat í mötuneytum okkar, farsímaáskrift og allt starfsfólk hefur aðgang að heilsu- og líkamsræktarstöðvum sér að kostnaðarlausu.
Umsóknarfrestur er til og með 20.nóvember 2025.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Helga Kristín Harðardóttir, í gegnum netfang [email protected].
Umsóknum skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi um hæfni viðkomandi í starfið.
Við hvetjum áhugasama aðila, án tillits til kyns og uppruna, til að sækja um.
Icelandic
English










