Veðurstofa Íslands
Veðurstofa Íslands
Veðurstofa Íslands

Sérfræðingur í mælarekstri

Veðurstofa Íslands auglýsir eftir sérfræðingi í mælarekstri, sem kemur til starfa á Athugana- og upplýsingatæknisviði. Sviðið sinnir margþættu hlutverki fyrir langtíma náttúrufars- og auðlindarannsóknir og vöktun náttúruvár. Í boði er spennandi og krefjandi starf í hópi 19 starfsmanna við rekstur á mælikerfum sem telja yfir 650 stöðvar vítt og breytt um landið.

Helstu verkefni og ábyrgð

Sérfræðivinna við mælarekstur, eftirlit, uppbyggingu og þróun mælikerfa. Starfið spannar mælirekstur á breiðu sviði: veðurmælinga, vatnamælinga, jarðmælinga, snjómælinga og fjarkönnunar. Í þessu starfi er sérstök áhersla á veðurmælikerfi. Rekstur veðurmælikerfa innifelur uppsetningu, viðhald og þjónustu þeirra um allt land. Töluverð útivist felst í starfinu og vinnu fjarri heimili, enda eru mælistöðvar staðsettar allt frá ystu annesjum og upp á háum fjöllum.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólanám á sviði verkfræði, tæknifræði eða raunvísinda með sterka tækni- og tölvuþekkingu. Framhaldsmenntun (MS) sem nýtist í starfi kostur
  • Reynsla í beitingu og viðhaldi mælitækja. Þekking á rekstri mælikerfa er kostur
  • Almenn þekking á náttúru Íslands
  • Góð færni í íslensku og ensku
  • Færni í mannlegum samskiptum og hæfni til að vinna sjálfstætt og í teymisvinnu
  • Skipulagshæfni, nákvæmni, frumkvæði og faglegur metnaður
  • Reynsla af þróun, smíði, sannprófun og kvörðun mælibúnaðar er kostur
  • Reynsla á sviði öryggismála og meðferð öryggis- og fjarskiptabúnaðar
  • Reynsla af útivist og ferðum í óbyggðum ásamt ökuréttindum C1E er kostur
Advertisement published31. October 2025
Application deadline17. November 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Bústaðavegur 9, 105 Reykjavík
Type of work
Work environment
Professions
Job Tags