Sérfræðingur
Leitað er að sérfræðingi á sviði fjárhagslegs utanumhalds til að hafa umsjón með nýjum fræðslusjóði - Torgssjóði. Starfsmaður sinnir upplýsingamiðlun, ráðgjöf, umsýslu umsókna, undirbúningi og úrvinnslu stjórnarfunda og umsjón með útborgunum. Starfið er nýtt og felur í sér spennandi tækifæri til að móta nýtt fyrirkomulag til framtíðar.
Starfið felst í utanumhaldi um nýjan fræðslusjóð – Torgssjóð – sem stofnaður er á grundvelli kjarasamnings Reykjavíkurborgar og Sameykis. Torgssjóður starfar samkvæmt samþykktri skipulagsskrá, heyrir undir lög nr. 1988/19 og hefur það hlutverk að veita sviðum og starfsstöðum Reykjavíkurborgar styrki til fræðsluverkefna.
Starfsmaður annast upplýsingamiðlun um sjóðinn, veitir umsækjendum ráðgjöf, tekur á móti umsóknum, undirbýr fundi stjórnar og vinnur úr þeim. Starfsmaður sér um útborganir úr sjóðnum og vinnur í nánu samráði við fjármála- og áhættustýringarsvið Reykjavíkurborgar vegna bókhalds, greiðslna og endurskoðunar sjóðsins. Starfsmaður fylgir einnig eftir styrktum verkefnum og hefur þannig aðkomu að ýmsum fræðsluverkefnum borgarinnar og innleiðingu fræðslustefnu. Starfið er 50% og ótímabundið og er starfsstöð í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Samstarfsaðilar- Stjórn sjóðsins, starfsfólk á fjármála- og áhættustýringarsviði, umsækjendur þ.e. stjórnendur og mannauðsfólk á sviðum borgarinnar, starfsfólk á mannauðs- og starfsumhverfissviði, starfsfólk Sameykis.
Reykjavíkurborg stendur fyrir virku fræðslustarfi fyrir starfsfólk, á grundvelli fræðslustefnu vinnustaðarins frá 2022. Lykilþáttur í því starfi er stafræna fræðslukerfið Torgið.
Mannauðs- og starfsumhverfissvið annast miðlæga mannauðsþjónustu borgarinnar og innleiðingu og eftirfylgni með stefnumótun í mannauðsmálum. Sviðið vinnur meðal annars að verkefnum á sviði mönnunar, kjaramála, launavinnslu, starfsumhverfis og starfsþróunar.
Laun eru greidd skv. samningum Reykjavíkurborgar við hlutaðeigandi stéttarfélag. Nánari upplýsingar um starfið veitir Ásta Bjarnadóttir á netfanginu asta.bjarnadottir@reykjavik.is
- Upplýsingamiðlun, t.d. á innri miðlum Reykjavíkurborgar
- Aðstoð og ráðgjöf við umsækjendur
- Umsjón með umsóknagátt á innri vef
- Undirbúningur og úrvinnsla stjórnarfunda
- Vinna í fjárhagskerfi borgarinnar
- Aðkoma að fjárvörslu sjóðsins
- Aðkoma að gerð ársreiknings og annarrar upplýsingagjafar
- Þátttaka í styrktum verkefnum og eftirfylgni við árangur.
- Þátttaka í innleiðingu fræðslustefnu Reykjavíkurborgar.
- Háskólagráða sem nýtist í starfi.
- Reynsla af fjármálatengdum verkefnum.
- Reynsla af vinnu í fjárhagskerfum.
- Góð færni í Excel er skilyrði.
- Þekking á fræðslumálum eða mannauðsmálum æskileg.
- Hæfni til að setja fram mál í ræðu og riti.
- Rík þjónustulund og færni í samvinnu og samskiptum.
- Frumkvæði, skipulagsfærni, reynsla af teymisvinnu og sjálfstæð vinnubrögð.
- Íslenskukunnátta á stigi C2 samkvæmt evrópskum tungumálaramma, enskukunnátta á stigi B2.
- 36 stunda vinnuviku
- Heilsustyrk, menningarkort og frítt í sund
- Samgöngusamning
- Gott mötuneyti