
Steypustöðin
Steypustöðin var stofnuð árið 1947 og eru aðalstöðvar félagsins á Malarhöfða 10 Reykjavík.
Steypustöðin er með útibú á nokkrum stöðum eins og Hafnarfirði, Selfossi, Helguvík, Borgarnesi og Þorlákshöfn ásamt tveimur færanlegum Steypustöðvum.
Eins og nafnið gefur kynna til er meginstarfssemi félagsins framleiðsla og afhending á steypu. Félagið rekur einnig helluverksmiðju, flotbíla fyrir flotmúr, múrverslun, efnisvinnslu og stærstu einingaverksmiðju landsins í Borgarnesi.
Hjá félaginu starfa nú um 300 starfsmenn

Leiðtogi á fjármálasviði
Steypustöðin leitar að sterkum og úrræðagóðum leiðtoga á fjármálasviði fyrirtækisins.
Viðkomandi þarf að búa yfir mikilli reynslu á sviði fjármála og af helstu verkefnum fjármálasviðs, og mun vinna náið með fjármálastjóra. Verkefnin eru fjölbreytt og krefjandi; því þarf viðkomandi að vera lausnamiðaður, sýna mikið frumkvæði og hafa sterka greiningarhæfni. Um framtíðarstarf er að ræða.
Við hvetjum öll kyn og þjóðerni til að sækja um.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Stýring og ábyrgð á mánaðarlegum uppgjörum og ársuppgjörum
- Stýra bókhaldsferlum og reikningshaldi
- Framsetning mánaðaruppgjöra og innri stjórnendaupplýsinga
- Aðkoma að þróun innra eftirlits og eftirfylgni með framkvæmd þess í rekstrinum
- Samskipti við endurskoðendur og skil á ársreikningum og lögbundnum gögnum til stjórnvalda
- Greining gagna og stuðningur við stjórnendur í stefnumótandi ákvörðunun
- Greining á veltufjármunum og aðkoma að fjárstýringu
- Aðkoma að áætlunargerð fyrir félagið og stuðningur við stjórnendur í áætlunarferli
- Teymisvinna þvert á einingar
- Önnur tilfallandi störf í samstarfi við fjármálastjóra
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi, s.s. viðskiptafræði, hagfræði, verkfræði eða sambærilegt
- Amk 3 ára starfsreynsla á fjármála- eða fyrirtækjamarkaði, í endurskoðun eða ráðgjöf
- Góð greiningarhæfni og skilningur á rekstri fyrirtækja
- Þekking og reynsla á Business Central
- Þekking og reynsla á notkun skýrslugerðartóla (Power BI, Tableau) er kostur.
- Mjög góð kunnátta í excel
- Sjálfstæð og öguð vinnubrögð
- Geta miðlað flóknum greiningum á einfaldan og myndrænan hátt til stjórnenda
- Góðir samskiptahæfileikar, jákvæðni og drifkraftur
Fríðindi í starfi
- Námskeið og fræðsla
- Líkamsræktarstyrkur
- Hádegismatur
- Fjölbreytt verkefni
- Jákvætt og hvetjandi vinnuumhverfi
Advertisement published29. August 2025
Application deadline10. September 2025
Language skills

Required

Required
Location
Malarhöfði 10, 110 Reykjavík
Type of work
Skills
DrivePositivityMicrosoft Dynamics 365 Business CentralMicrosoft ExcelPower BIIndependenceReport writingWrite up
Work environment
Professions
Job Tags
Other jobs (3)
Similar jobs (12)

Fjármálastjóri
Knattspyrnufélagið Valur

Sérfræðingur í lánadeild
Stapi lífeyrissjóður

AÐALBÓKARI
Flóahreppur

Viðskiptastjóri á Akranesi
Landsbankinn

Business Partner þróunarsviðs
atNorth

Forstöðumaður reikningshalds
Bílaumboðið Askja

AÐALBÓKARI
Þingeyjarsveit

Sviðsstjóri fjármála og upplýsingatækni
Dagar hf.

Viðskiptafræðingur - Bókari
&Pálsson

Fyrirtækjaráðgjafi á Akureyri
Arion banki

Leiðtogi á fjármálasviði – Fjármálaáætlanir, uppgjör og greiningar
Bílaumboðið Askja

Nýliði í fyrirtækjaráðgjöf
Arion banki